Í augum margra er Madagaskar gróskumikið land sem er þekkt fyrir fjölskrúðugt dýralíf og gróður. Það kemur því flestum á óvart að íbúar landsins búa margir hverjir við ömurlegar aðstæður.

Madagaskar er fimmta stærsta eyja heims og þar búa um 28 milljónir. Eyjan hefur orðið fyrir miklum áhrifum loftslagsbreytinga með skelfilegum afleiðingum fyrir íbúa. Suðurhluti eyjunnar hefur farið verst úti og er útsettur fyrir miklum þurrkum en suðausturhlutinn fyrir flóðum og fellibyljum. Í þeim hluta eyjunnar búa um 92% íbúa undir fátækrarmörkum þrátt fyrir að landið sé ríkt af náttúruauðlindum.

Barnaheill hófu mannúðarverkefni í Androy héraði í suður Madagaskar þann 1. maí 2025 með stuðningi utanríkisráðuneytis Íslands.

Verkefnið miðar að því að tryggja velferð barna og draga úr fátækt á þurrkasvæðum héraðsins. Í Androy héraði er fæðuöryggi minnst í landinu og þjáðust 83.400 börn af alvarlegri vannæringu á árunum 2024 – 2025. Markmið verkefnisins er að auka fæðuöryggi fólks með því að efla ræktun og landbúnað með fræðslu og fjárstyrkjum. Þannig styrkjum við stoðir barnafjölskyldna og aukum möguleika barna í Madagaskar á því að öðlast mannsæmandi líf og bjartari framtíð.

Markmið verkefnisins
Áhrif loftslagsbreytinga á líf barna í Madagaskar

Eins og áður segir þá hefur Madagaskar orðið fyrir miklum áhrifum loftslagsbreytinga með skelfilegum afleiðingum fyrir íbúa en 40% barna þar í landi eru vannærð. Landbúnaður er stærsti iðnaðurinn í landinu og því reiða íbúar sig mjög á hann. Sjálfbærir lifnaðarhættir eru ríkjandi á svæðinu í suðri þar sem íbúar halda búfénað og rækta mat til eigin neyslu og eru háðir regnvatni en úrkoma hefur ítrekað brugðist á undanförnum árum. Það leiðir af sér mikla þurrka og uppskerubrest. Einnig hafa hvirfilbylir farið yfir landið og lagt heilu þorpin að velli, hús og ræktarlönd. Gjarnan er gripið til örþrifaráða til að fólk megi lifa af við þessar aðstæður. Fjöldi barna flosnar upp úr námi og er gert að sinna heimili og búfénaði eða vinnu utan heimilisins og barnahjónaböndum fjölgar. Þessu þarf að bregðast við og leggja Barnaheill lóð á vogarskálarnar til að draga úr neikvæðum áhrifum loftslagsáhrifanna á börn.

Loftslagsbreytingar eru ein helsta ógnin sem steðjar að heiminum og áhrif þeirra bitna mest á börnum

Birtingarmyndir loftslagsbreytinga eru m.a. tíðari hitabylgjur, lengri þurrkatímabil, skæðir stormar, aurskriður og flóð sem leggja í rúst hýbíli, ræktarsvæði og lífsviðurværi fólks. Ein afleiðingin er sú að fátækt eykst og nú hafa milljónir fjölskyldna um allan heim hvorki ráð á því að fæða börnin sín né senda þau í skóla. Mörg börn eru látin vinna til að hjálpa við að sjá fjölskyldum sínum farborða, oft við óviðunandi aðstæður sem ekkert barn ætti að búa við.

Svona getur þú hjálpað börnum í Madagaskar

Hér er hægt að styðja við verkefni Barnaheilla. Hjálpumst að og verndum börn í  Madagaskar og um allan heim.

Heillavinir eru mánaðarlegir styrktaraðilar okkar og taka á þann hátt þátt í forvarnastarfi okkar gegn hverskyns ofbeldi á börnum.