- This event has passed.
Strákar spjalla saman
16. október 2025 kl: 16:30 - 18:30

- Gjaldfrjálst námskeið fyrir karla sem starfa með börnum og unglingum og hafa áhuga á því að auka færni sína í að taka samtal við unga stráka um málefni sem oft geta verið viðkvæm og jafnvel eldfim.
- Námskeiðið fer fram alla fimmtudaga á tímabilinu 16. október – 20. nóvember kl. 16.30-18.30 (6 skipti).
- Tveir hópstjórar stjórna samtalinu en í hverri viku er ákveðið viðfangsefni tekið fyrir og rætt um, s.s. geðheilsu og vanlíðan, kynlíf og
klám, sjálfsmynd og framtíðardrauma, kynferðisofbeldi, fordóma o.fl. - Hópstjórar eru Ragnar Harðarson og Hjörleifur Steinn Þórisson en þeir hafa báðir áralanga reynslu af starfi með ungmennum.
- Viðfangsefnin eru rædd bæði út frá því hvernig þau birtast í samfélaginu/nærumhverfinu/á netinu og einnig út frá skoðun og upplifun hvers og eins.
- Á námskeiðinu er pláss fyrir hámark 15 karla og allir skuldbinda sig til að mæta vel og taka þátt af heilum hug.
- Skýrar reglur eru um virðingu og hver og einn ákveður hversu miklu hann vill deila.
- Þar sem aðeins er pláss fyrir 15 karla þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
- Staðsetning er á höfuðborgarsvæðinu en verður kynnt betur þegar nær dregur.
