Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Skráning á ungmennaþing Barnaheilla – Egilsstaðir

24. mars kl: 10:30 - 13:30

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru að skipuleggja sex ungmennaþing vítt og breitt um landið, þar sem rætt verður um ofbeldi í nánum samböndum. Niðurstöður samtalsins verða nýttar til að þrýsta á stjórnvöld að grípa til öflugari aðgerða gegn ofbeldi í samfélaginu.

Við verðum á Egilsstöðum þriðjudaginn 24. mars kl. 10.30-13.30. Fundurinn verður haldinn í salnum í Menntaskólanum á Egilsstöðum og boðið verður upp á pizzur.

Þú hefur fengið hlekk á þessa skráningarsíðu því okkur langar að bjóða þér, ásamt fleiri ungmennum, að taka þátt í samtalinu á ungmennaþinginu. Við sendum þér nánari upplýsingar fyrir fundinn og deilum svo með þér niðurstöðunum af öllum þingunum.

Þú færð leyfisbréf frá okkur til að senda á skólann þinn.

Ef þú ert með einhverjar spurningar þá geturðu sent póst á Kolbrúnu Hrund, verkefnastýru ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum, kolla@barnaheill.is

Details

  • Date: 24. mars
  • Time:
    10:30 - 13:30