- This event has passed.
Skráning á ungmennaþing Barnaheilla – Akureyri
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru að skipuleggja sex ungmennaþing vítt og breitt um landið, þar sem rætt verður um ofbeldi í nánum samböndum. Niðurstöður samtalsins verða nýttar til að þrýsta á stjórnvöld að grípa til öflugari aðgerða gegn ofbeldi í samfélaginu.
Við verðum á Akureyri fimmtudaginn 5. mars kl. 9-11.30. Fundurinn verður haldinn í Hofi og endar á pizzuveislu í hádeginu.
Þú hefur fengið hlekk á þessa skráningarsíðu því okkur langar að bjóða þér, ásamt fleiri ungmennum, að taka þátt í samtalinu á ungmennaþinginu. Við sendum þér nánari upplýsingar fyrir fundinn og deilum svo með þér niðurstöðunum af öllum þingunum.
Þú færð leyfisbréf frá okkur til að senda á skólann þinn.
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá geturðu sent póst á Kolbrúnu Hrund, verkefnastýru ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum, kolla@barnaheill.is
