Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Opið fræðsluerindi um kynferðisofbeldi gegn börnum

27. apríl kl: 14:00 - 15:30

Í tilefni af vitundarvakningunni ÉG LOFA verða Barnaheill – Save the Children á Íslandi með opið fræðsluerindi um kynferðisofbeldi gegn börnum mánudaginn 27. apríl kl. 14:00 – 15:30.

Fundurinn verður rafrænn og aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg, sjá neðar.

Fræðsluerindið er hugsað fyrir foreldra, forsjáraðila og fólk sem vinnur með eða í þágu barna.

Upplýst umræða, fræðsla og stuðningur við börn og ungmenni, foreldra og fagfólk sem starfar með börnum, er mikilvæg forvörn og nauðsynlegt tæki í baráttunni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.

Fólk sem starfar með börnum og ungmennum og foreldrar/forsjáraðilar ættu að hafa grunnþekkingu á kynferðisofbeldi til að geta komið auga á rauðu ljósin, gripið til réttra viðbragða, þekkt helstu úrræði og þá aðstoð sem er í boði.

Fyrirlesari á fundinum er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. Hún hefur áralanga reynslu af jafnréttis-, kynheilbrigðis- og kynferðisofbeldismálum tengdum börnum og ungmennum, bæði hvað varðar forvarnir og viðbrögð.

*Netfang er nauðsynlegt svo við getum sent þér hlekk á fjarfundinn.
*Með því að skrá símanúmer gefur þú leyfi fyrir því að starfsfólk Barnaheilla megi hafa samband við þig.

Details

  • Date: 27. apríl
  • Time:
    14:00 - 15:30