Metþátttaka í ungmennaþingi Barnaheilla í Hafnarfirði og Garðabæ

Rúmlega 80 ungmenni tóku þátt í öðru ungmennaþingi Barnaheilla um ofbeldi í nánum samböndum, en það var haldið í Skátaheimilinu í Hafnarfirði þann 4. mars. Þátttakendur voru úr efstu bekkjum Garðaskóla í Garðabæ, og Lækjarskóla, Setbergsskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla og Áslandsskóla í Hafnarfirði, ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Flensborg.

,,Ungmennin sem mættu  úr skólunum í Hafnarfirði og Garðabæ voru hreint út sagt stórkostleg. Það var virkilega gagnlegt að heyra þeirra sýn á þetta mikilvæga málefni,“ sagði Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Mér fannst áberandi hversu virk þau voru í hópavinnunni. Það var líka gaman hversu mörg þeirra töluðu um að þau hefðu lært mikið af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu.“ 

Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Starfsfólk sem vinnur að ungmennastarfi í skólunum tók að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin.

Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum og læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvert bæði þolendur og gerendur geta leitað eftir aðstoð, hvaða úrræði eru í boði, við hverja er best að tala, og eins um mikilvægi fræðslu og forvarna eins og Barnaheill standa að.

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis settist niður í hópavinnu með krökkunum á ungmennaþinginu.

Ungmennin voru sér og sínum skólum til mikils sóma og tóku virkan þátt í samtalinu. Þau kölluðu eftir meiri fræðslu og töldu að stjórnvöld ættu að gera meira í því að auka umræðu og efla forvarnir í þessum málaflokki. Ungmennaþinginu lauk svo um hádegi með veislu þar sem boðið var upp á pizzur, og allir fengu kveðjugjöf frá Barnaheillum í þakklætisskyni fyrir þátttökuna.

Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneyti til að halda ungmennaþing á sex stöðum víðs vegar um land. Fyrsta þingið var á Suðurnesjum í febrúar,  annað nú í Hafnarfirði og Garðabæ og næsta þing verður haldið strax á morgun 5. mars á Akureyri. Fjórða í röðinni verður Ísafjörður 16. mars, svo 24. mars á Egilsstöðum, og lokst 26. mars á Selfossi.

Niðurstöður af þingunum verða sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, og verða nýttar til að byggja upp betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl.