Mannskæðir fellibyljir valda eyðileggingu og skaða á Madagaskar
Stjórnvöld á Madagaskar hafa lýst yfir neyðarástandi eftir að fellibylurinn Gezani gekk yfir austurhluta eyjunnar þann 10. febrúar. Að minnsta kosti 36 fórust, þar af tvö börn. Um 400 særðust og fjögurra er enn saknað.
Aðeins eru tvær vikur síðan fellibylurinn Fytia skall á norðurhluta eyjunnar og varð 14 manns að bana. Tugþúsundir hafa misst heimili sín af völdum fellibyljanna og flóða sem hafa fylgt í kjölfarið. Skaðinn er mestur í héruðum á norðaustur- og austurhluta eyjunnar.
Madagaskar hefur orðið gríðarlega illa út vegna loftslagsbreytinga og gróðureyðingar af mannavöldum, og hafa miklir öfgar einkennt veðurfar þar síðustu ár. Á suðurhluta eyjunnar, þar sem Barnaheill reka mannúðarverkefni með styrk frá utanríkisráðuneyti, eru þrálátar hitabylgjur og þurrkar á meðan skæðir stormar, flóð og aurskriður leika norður- og austurhlutann grátt.
Afleiðingarnar eru skelfilegar, fólk hefur misst lífsviðurværi sitt og fátækt aukist. Fólk grípur til örþrifaráða til að lifa af við þessar aðstæður. Fjöldi barna hefur flosnað upp úr námi og er gert að sinna vinnu utan heimilis og barnahjónaböndum hefur fjölgað. Þetta vilja Barnaheill sporna gegn.
Í Androy héraði, þar sem Barnaheill starfa, er fæðuöryggi minnst í landinu. Um 84.000 börn á svæðinu þjást af alvarlegri vannæringu. Markmið verkefnisins er að auka fæðuöryggi fólks með því að efla ræktun og landbúnað með fræðslu og fjárstyrkjum. Þannig styrkja Barnaheill, með stuðningi utanríkisráðuneytis, stoðir barnafjölskyldna og auka möguleika barna í Madagaskar til að öðlast betra líf og bjartari framtíð.
