Leiksmiðjur fyrir börn á flótta í samstarfi Barnaheilla og Borgarleikhúss
Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri hafa undirritað samstarfssamning um leiklistarkennslu fyrir börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd, og sækja skóla í Hafnarfirði.
Verkefnið mætir mikilli þörf eftir að frístundastarf barna á flótta var lagt niður, þegar málaflokkurinn var færður frá sveitarfélögum til Vinnumálastofnunar. Haldnar verða leiklistarsmiðjur og námskeið í Víðistaðaskóla og Hvaleyrarskóla nú í mars, með það að markmiði að efla sjálfstraust, félagsfærni og leikgleði barnanna.
Samstarfið byggir á verkefninu Létti, sem Leiklistarskóli Borgarleikhússins hóf árið 2020 fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hjá Reykjavíkurborg. Verkefnið var svo útvíkkað fyrir tveimur árum, þegar Leiklistarskólinn hóf samvinnu við móttökudeild Seljaskóla, og enn frekar árið 2025 þegar móttökudeild Breiðagerðisskóla bættist við. Nú stækkar verkefnið enn frekar fyrir tilstilli Barnaheilla og verður unnið í samstarfi við fjórar móttökudeildir fyrir börn á flótta í Reykjavík og Hafnarfirði.
Þetta samstarf Barnaheilla og Borgarleikhússins á sér töluverðan aðdraganda. Starfsmenn Barnaheilla fóru til Rúmeníu og Litháen til að kynna sér verkefni fyrir börn á flótta frá Úkraínu vorið 2024.
„Það sem kveikti stærstan áhuga hjá mér voru listasmiðjurnar þar, hvernig fólk hefur notað list og listkennslu til að taka á móti þessum hópi, til að vinna úr því sem þau hafa upplifað og lent í,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Þetta hefur gefið mjög góða raun þar.”
Börn á flótta svipt frístundastarfi
Tótla segir að stuttu eftir að þau komu heim úr þessari ferð, hafi starfsemin um móttöku fólks á flótta verið flutt frá sveitarfélögunum til Vinnumálastofnunar. Þá hafi þessi hópur á Íslandi misst aðgang að öllu frístundastarfi og íþróttum.
„Það varð ákveðin þjónustusvipting fyrir börn á flótta þegar þessi málaflokkur færðist yfir, þá misstu þessi börn alla þjónustu eftir skóla,“ segir Tótla. „Það er lögbundin skólaganga, en allt sem kemur eftir það, allt sem kennir börnunum okkar að umgangast hvert annað, það var í rauninni algerlega tekið út frá þessum hópi.“
Þetta gátu Barnaheill ekki sætt sig við, og leituðu því leiða til að styðja betur við þennan hóp.
„Við vitum í raun ekkert hvar þessir krakkar enda. Við höfum ekki hugmynd um hvort þau fái að aðlagast samfélaginu okkar, eða hvort þau verði send úr landi. En það sem við vitum hinsvegar er að allt sem er gert til að styrkja þau, það mun fylgja þeim,“ segir Tótla. „Þannig að þó þau séu hluti af samfélaginu okkar í aðeins stuttan tíma, þá mun það fylgja þeim áfram. Það valdeflir þau, og hjálpar þeim að aðlagast þar sem þau lenda næst.“
Listasmiðjur með Listasafni Reykjavíkur
Með þetta að leiðarljósi hófu Barnaheill samstarf við Listasafn Reykjavíkur um að bjóða upp á tvö myndlistanámskeið – eitt fyrir hóp úkraínskra barna, og svo annað á arabísku fyrir mjög fjölbreyttan hóp barna á flótta. Um 20 börn sóttu sex vikna námskeið hjá Listasafni Reykjavíkur vorið 2025, og af því var mjög góð reynsla.
„Við sáum þessi börn blómstra, við sáum vinasambönd myndast, við sáum að börnin fóru að mæta á söfnin sjálf, sem mér fannst dásamleg hliðarafurð af þessu verkefni,“ segir Tótla.
Út frá þessu fóru Barnaheill að skoða hvernig hægt væri að stækka verkefnið og bæta við öðrum listformum. Samtökin höfðu því samband við Borgarleikhúsið sem rekur leiklistarskóla fyrir börn, til að kanna mögulega samstarfsfleti. „Þá hafði ég ekki hugmynd um að þau væru svo sannarlega búin að vinna með þetta módel árum saman,“ segir Tótla.
Barnaheill og Borgarleikhús í samstarf fyrir börn á flótta
Verkefni Borgarleikhússins hófst í samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar árið 2020, þar sem boðið var upp á leiklistarsmiðju í einn dag með leikjum, spuna, hópefli og skoðunarferð um leikhúsið. Eva Halldóra Guðmundsdóttir, yfirkennari Leiklistarskóla Borgarleikhússins, segir að þeim hafi þótt erfitt að kveðja börnin eftir aðeins einn dag, og því hafi kviknað hjá þeim löngun að skilja eftir alvöru færni fyrir tilstilli leiklistarinnar.
Þau hafi því farið í að þróa þetta betur með móttökudeild barna á flótta í Seljaskóla árið 2024, þannig að námskeiðið væri að hluta til kennt í öruggu umhverfi barnanna í skólanum þeirra, og þeim svo boðið í Borgarleikhúsið til að gera það að þeirra nærumhverfi líka. Á síðasta ári bættist svo móttökudeildin Breiðagerðisskóli við. Leiklistarsmiðjur með þessum skólum voru haldnar í desember og janúar.

„Svo þegar Tótla hefur samband, þá erum við í startholunum með þessar smiðjur og við ákváðum að stækka verkefnið enn frekar og fara í samstarf við móttökudeildirnar í Hafnarfirði líka, í Víðistaðaskóla og Hvaleyraskóla, nú í mars,“ segir Eva Halldóra. „Þannig að á einu ári hefur þetta verkefni stækkað úr því að vera ein leiklistarsmiðja í fjórar.“
Að sögn Evu Halldóru gengur leiklistarverkefnið Léttir út á það að létta lundina í gegnum leiklist fyrir börn sem eru að koma inn í glænýtt samfélag og eru að læra ofboðslega mikið af nýjum hlutum.
„Okkur langaði að hafa lágmarksáherslu á tungumál og hámarksáherslu á valdeflingu og tengingu. Þannig að allir leikirnir ganga út á að mynda tengingu þeirra á milli, tengingu við okkur og tengingu við samfélagið,“ segir hún. „Þau þurfa á þessum grunnþörfum að halda, sem eru bara tenging og traust – að finna fyrir því að fólk haldi með þeim, og horfi í augum á þeim, og sjái þau.“
Unnið er náið með starfsfólki móttökudeildanna fjögurra, og leitast við að búa til hóp þar sem einstaklingarnir treysta hverjum öðrum og tengjast traustum böndum í gegnum leiklistina. Einnig eru kenndir leikir sem íslenskir krakkar leika sér í á skólalóðinni, auk þess sem þátttakendunum gefst færi á að kynnast listinni, leikhúsinu og menningunni í þeim hluta námskeiðsins sem fer fram í Borgarleikhúsinu.
Barnaheill fagna því að geta nú boðið börnum á flótta sem búa í Hafnarfirði að taka þátt í þessu einstaka leiklistarverkefni. Þá verður leitast við að þróa áfram verkefnið um listasmiðjur í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. Tótla og Eva Halldóra ræddu um samstarf Barnaheilla og Borgarleikhússins við Gunnar Hansson í Mannlega þættinum á RÚV. Hér má hlusta á viðtaldið á vefsíðu RÚV.
