Kröfur barna á COP30 – loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

Á hverjum degi verða um 136.000 börn fyrir áhrifum loftslagstengdra hamfara, eða um 48 milljónir á ári, frá því fyrsta loftslagsráðstefnan (COP) var haldin fyrir 30 árum, samkvæmt alþjóðasamtökum Barnaheilla – Save the Children. Börn missa heimili og skóla í flóðum, þjást af hungri vegna uppskerubrests og heilsu þeirra er ógnað af hitabylgjum og sjúkdómum.

Þann 10. nóvember hefst COP30 og stendur yfir til 21. nóvember, en í ár eru 10 ár frá undirritun Parísarsamkomulagsins sem kveður á um að ríki heims skuldbindi sig til að reyna að halda hnattrænni hlýnun undir 1.5 gráðum.

COP30 er tækifæri til að tryggja að baráttan gegn loftslagsbreytingum verði jafnframt barátta fyrir réttlæti, sanngirni og framtíð barna um allan heim. Því áhrif loftslagsbreytinga á börn eru ævilöng, óafturkræf og óréttlát.

Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children hafa unnið með börnum um allan heim og hlustað á raddir þeirra varðandi áhrif loftslagskrísunnar á líf þeirra og nauðsynlegar aðgerðir. Niðurstaðan verður kynnt ráðamönnum heims á loftslagsráðstefnunni sem haldin er í Brasilíu.

Kjarnaskilaboð barna til leiðtoga heims:
  • Börn geta ekki beðið lengur eftir loftslagsaðgerðum.
  • Loftslagskrísan er barnakrísa
  • Réttindi barna verða að vera í forgrunni.
Því staðreyndirnar eru að:
  • 774 milljónir barna í heiminum búa við tvöfalda ógn; loftslagsógn og fátækt.
  • Næstum hvert einasta barn í dag upplifir að minnsta kosti eitt loftslagsáfall á ári, svo sem fellibyl eða hitabylgju.
  • Börn sem fædd eru í dag munu upplifa 6.8x oftar hitabylgjur, 2.8x fleiri uppskerubresti, 2.6x oftar þurrka og 2.8x fleiri flóð á ævi sinni en þau sem fæddust árið 1960.
  • Nær einn þriðji fimm ára barna – um 38 milljónir – gæti sloppið við ævilangt ófyrirséð ofhitunarástand ef markmið Parísarsamningsins um 1,5°C hnattræna hlýnun næðist.
Ég vil að stjórnvöld skuldbindi sig til að auka þátttöku ungmenna í leit að lausnum, því við erum þau sem þurfum að takast á við loftslagsbreytingarnar og lifa með þeim,“ segir Kisaki, 17 ára, frá Kólumbíu.
Hvatning til þjóðarleiðtoga

Barnaheill – Save the Children hvetja þjóðarleiðtoga á COP30 til að grípa til skjótra og afgerandi aðgerða til að vernda börn gegn áhrifum loftslagsbreytinga:

  • Viðurkennið börn sem forgangshóp í loftslagsviðræðum, stefnumótun og fjármögnun.
  • Tryggið raunverulega þátttöku barna í ákvarðanatöku.
  • Hættið tafarlaust notkun jarðefnaeldsneytis á sanngjarnan hátt í samræmi við 1,5 gráðu markmiðið.
  • Fjárfestið í þjónustu sem aðlagast loftslagsbreytingum – þar á meðal heilbrigðis-, mennta-, vatns-, næringar- og barnaverndarþjónusta.
  • Aukið rannsóknir og gagnasöfnun til að varpa ljósi á raunveruleg áhrif loftslagsbreytinga á börn um allan heim.
Verndum rétt barna á tímum loftslagskrísunnar

Börn um allan heim eru að láta raddir sínar heyrast, deila lausnum og krefjast breytinga en ríkisstjórnir og leiðtogar heimsins hlusta ekki.  Í stefnumótunarplagginu Verndum rétt barna á tímum loftslagskrísunnar, sem unnið var með börnum um allan heim, má sjá niðurstöður sem verða kynntar á COP30.