Kalla eftir opnu samtali og meiri kynfræðslu – ungmennaþing á Norðurlandi vestra
Nemendur sem tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla á Norðurlandi vestra kalla eftir meiri kynfræðslu og opnara samtali um náin sambönd og ofbeldi meðal unglinga. Um 75 ungmenni úr 10. bekk frá öllum sex grunnskólum á Norðurlandi vestra, og Fjölbrautaskólanum á Norðurlandi vestra tóku þátt í vinnustofunni, þar sem leitast var eftir að heyra þeirra reynslu og upplifun.
Ungmennaþingið var haldið að frumkvæði sveitarfélaganna á svæðinu. Niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni sýna að ungmenni á Norðurlandi vestra standa að mörgu leyti verr að vígi en jafnaldrar þeirra annars staða á landinu með tilliti til ofbeldis í nánum samböndum. Þessari þróun vilja forráðafólk í sveitarfélögunum snúa við.
Nemendur úr grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga, Húnaskóla á Blönduósi, Höfðaskóla á Skagaströnd, Árskóla á Sauðárkróki, Varmahlíðarskóla í Skagafirði, grunnskólanum austan Vatna í Skagafirði, og svo Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sóttu þingið.
„Það sem stóð upp úr var hversu margir mættu, við höfum aldrei haldið jafn stórt ungmennaþing og krakkarnir stóðu sig svo vel og voru frábærir þátttakendur. Einnig skipti mig persónulega miklu máli endurgjöfin frá ungmennunum sjálfum, mörg þeirra höfðu á orði hversu gott það væri að fá vettvang þar sem þau gætu hist og rætt jafn erfitt málefni og ofbeldi í nánum samböndum saman, í öruggu umhverfi með jafnöldrum sínum af öllu svæðinu,“ segir Sara Björk Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri farsældar hja Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. „Það segir okkur að þessi umræða á ekki að vera feimnismál, heldur eitthvað sem ungmenni fá að ræða saman og finna stuðning hvert hjá öðru. Ofbeldi þrífst í þögninni. Það er okkar ábyrgð sem samfélag að ræða þetta opinskátt svo að börnin okkar viti hvað eru eðlileg samskipti og hvað ekki. Krakkarnir kalla eftir meiri fræðslu og þá í formi aukins samtals þar sem þeim er mætt á jafningja grundvelli.“
Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Kennarar og starfsfólk sem vinna að ungmennastarfi í skólunum á
svæðinu tóku að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin í litlum hópum.
Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum og læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvert bæði þolendur og gerendur geta leitað eftir aðstoð, hvaða úrræði eru í boði, við hverja er best að tala og eins um mikilvægi fræðslu og forvarna eins og Barnaheill standa að.
Unga fólkið var sér og sínum skólum til mikillar fyrirmyndar og tók virkan þátt í samtalinu. Þau kölluðu eftir meiri fræðslu og töldu að stjórnvöld ættu að gera meira í því að auka umræðu og efla forvarnir í þessum málaflokki.
,,Ungmennin sem mættu á þingið í gær voru hreint út sagt frábær. Mörg þeirra töluðu um hversu mikið þau hefðu lært af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu,“ sagði Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. „Öll segjast þau vilja meiri fræðslu, og það rímar við það sem við höfum heyrt annarsstaðar á landinu. Þetta segir okkur bara eitt- að við þurfum að sinna forvörnum mun betur og auka verulega við kynningu á þeim úrræðum sem ungt fólk getur leitað í.”
Ungmennaþinginu lauk svo með veislu þar sem þátttakendum var boðið upp á pizzur eftir góðar umræður. Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mætti á svæðið við gríðarlega góðar undirtektir hjá krökkunum. Allir fengu svo hleðslubanka og margnota taupoka að kveðjugjöf frá Barnaheillum.
Það er mikill lærdómur falinn í þátttöku á svona ungmennaþingi og það skapar dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Barnaheill munu nú taka saman upplýsingar og niðurstöður af þinginu, og Farsældarráðið, Öruggara Norðurland vestra og ForNor munu nýta þá vinnu til að byggja upp betra forvarnarstarf og móta viðbrögð við ofbeldi í lífi ungmenna á Norðurlandi vestra.
Ungmennaþingið var samstarfsverkefni Barnaheilla, SSNV, Farsældarráðs Norðurlands vestra, Öruggara Norðurland vestra og Forvarnaráætlunar Norðurlands vestra. Þingið var haldið að frumkvæði SSNV og Öruggara NV, í samvinnu við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og með styrk frá Kaupfélagi Skagfirðinga, FISK seafood, Steinull, Borealis datacenter, Byggðarstofnunar, N1 á Sauðárkróki og Kjörbúðarinnar á Blönduósi.