Hvernig hjálpum við börnum í hitabylgju? 8 gagnleg ráð fyrir foreldra
Sumarið er tíminn þegar margar fjölskyldur halda til sólarlanda. Nú er hitabylgja í kortunum í Evrópu og því mikilvægt að hafa í huga að ung börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir miklum hita.
Hér eru nokkur gagnleg ráð frá sérfræðingum Barnaheilla – Save the Children um hvernig þú getur tryggt öryggi barnsins þíns í hitabylgju.
1. Verið upplýst
- Fylgist með veðurspám og fréttum af stöðu mála í staðarmiðlum.
- Farið eftir leiðbeiningum frá yfirvöldum á staðnum.
2. Forðist sólina ef þið eruð úti
- Klæðist fötum úr léttum og ljósum efnum sem hleypa lofti í gegn (bómull er góð).
- Notið sterka sólarvörn sem ver bæði fyrir UVA og UVB geislum.
- Finnið skugga, notið húfur og regnhlífar til að verjast sólargeislum.
3. Drekkið nóg af vökva
- Munið að drekka nóg af vökva, alveg óháð virkni.
- Dökkt þvag getur bent til ofþornunar.
4. Haldið vistarverum köldum
- Lokið gluggum á daginn þegar það er heitara úti en inni.
- Dragið gluggatjöld fyrir alla glugga til að halda hitanum úti.
5. Hægið á ykkur
- Dragið úr, hættið við, eða frestið afþreyingu sem krefst mikillar áreynslu. Veljið svalasta tíma dagsins fyrir virkni.
- Sjáið til þess að börn fái næga hvíld, sérstaklega eftir að hafa verið virk.
6. Sjáið börnum fyrir afþreyingu
- Börn geta orðið kvíðin eða eirðarlaus af því að vera inni.
- Skipuleggið skemmtilega afþreyingu og leiki innandyra og takmarkið skjátíma á sjónvarpi, síma og spjaldtölvu.
7. Kælið ykkur niður til að forðast ofhitnun
- Hjálpið börnum að lækka líkamshitann með því að fylla bala með köldu vatni og setja þau í fótabað.
8. Kynnið ykkur helstu einkenni hitatengda sjúkdóma
- Lærið að þekkja einkenni hitatengdra sjúkdóma eins og sólsting, hitaslag, þreytu, krampa og alvarlegan sólbruna.
- Ef börn sýna þessi einkenni leitið tafarlaust til læknis.
- Forðist þessar hættur með því að grípa til viðeigandi ráðstafana!
