Heilsu verðandi mæðra og nýbura ógnað mánuði eftir jarðskjálfta í Venesúela
Barnaheill – Save the Children hafa þungar áhyggjur af heilsu þúsunda verðandi mæðra og ungbarnamæðra á jarðaskjálftasvæðunum í Venesúela. Þær hafa takmarkaðan aðgang að mæðravernd, næringarríkri fæðu og öruggu skjóli því mikill fjöldi heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnana eru nú óstarfhæfar eftir að byggingar hrundu eða skemmdust í skjálftunum tveimur sem riðu yfir þann 24. júní.
Alls misstu um 21.000 manns heimili sín í skjálftunum, og verða að hafast við í neyðarskýlum eða undir berum himni. Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum eru um 37.000 verðandi mæður á meðal þeirra sem urðu fyrir áföllum af völdum jarðskjálftanna. Þar af eru um 4.000 mæður sem eiga von á barni á næstu vikum.
Loka varð stærsta fæðingarsjúkrahúsi í La Guaira héraði vegna skemmda á burðarvirki byggingarinnar og þar er eingöngu hægt að veita grunnþjónustu til verðandi mæðra. Vísa verður öllum vafatilfellum til höfuðborgarinnar Caracas.
Takmarkað aðgengi að næringarríkum mat, þurrmjólk fyrir ungabörn, og skortur á mæðravernd á meðgöngu eykur einnig hættuna á vannæringu hjá ungbörnum, auk þess sem meiri hætta verður á fyrirburafæðingum og lágri fæðingarþyngd.
Nú er regntímabilið í Venesúela, og fjölskyldur hafast því margar við í blautum tjöldum. Nýfædd börn eiga á hættu að að veikjast illa vegna slæmra skilyrða, og eru einnig í hættu á að smitast af beinbrunasótt eða sika-veirunni sem dreifast með móskítóbitum. Fjöldi mæðra segjast finna fyrir streitu og kvíða vegna þessa, og því hversu erfitt sé að kaupa bleyjur og afla annarra nauðsynja fyrir börnin.
Barnaheill – Save the Children segja að það sé brýnt að barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og börn þeirra fái forgang í mannúðaraðstoð og í endurreisnarstarfi í Venesúela. Því takmarki verði aðeins náð með góðri samhæfingu, fullnægjandi fjármögnun og markvissum aðgerðum.
