Barnaheill bjóða upp á námskeið og fyrirlestra þar sem hægt er að öðlast þekkingu og fræðslu og bæta verklag í forvörnum gegn ofbeldi á börnum.
Við teljum að fræðsla og upplýst umræða sé besta forvörnin og stuðli að því að við sem samfélag verðum betur í stakk búin til að takast á við og koma í veg fyrir óæskilega hegðun. Kynferðisofbeldi gagnvart börnum er alvarlegt, alþjóðlegt vandamál og eru vitundarvakning, fræðsla og forvarnir afar mikilvæg tæki í baráttunni gegn því.
Börn bera aldrei ábyrgð á því ofbeldi sem þau verða fyrir eða horfa upp á og það á aldrei að líðast.
Heillabraut - Fullorðnir
Fróðleikur og ráðgjöf fyrir fullorðna um hvernig megi bregðast við, tala upphátt um kynferðisofbeldi, fræðast, hlusta og senda skýr skilaboð til barna um að þau fái stuðning ef þau segja frá ofbeldi.
HEILLABRAUT- UNGMENNI
Hefur þú spurningar varðandi kynheilbrigði, sambönd, samskipti eða jafnvel ofbeldi? Hefur þú áhyggjur af kynferðislegum hugsunum þínum? Hér má finna ýmsar vangaveltur og svör við pælingum ungs fólks.
CSAPE
Fimm Evrópulönd tóku höndum saman að efla forvarnir gegn kynferðislegri misnotkun á börnum. CSAPE verkefnið hefur náð mikilvægum árangri í að vekja athygli, fræða hagsmunaaðila og styrkja bæði fagfólk, börn og ungmenni í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum.
HEILLABRAUT - FRÆÐSLA & RÁÐGJÖF
Markmið Heillabrautar er að fækka kynferðisbrotum gegn börnum og ungmennum. Það viljum við gera með fræðslu og stuðningi við börn og ungmenni, foreldra og fagfólk, öllum til heilla. Hér má finna upplýsingar um fræðsluerindi og námskeið í boði árið 2025.
