Haustsöfnun Barnaheilla hófst með sölu á Vigdísarstokki

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu árlega haustsöfnun sína í dag, fimmtudaginn 27. ágúst, með sölu á vönduðum spilastokki sem var unninn í samvinnu við Rán Flygenring með myndum úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann.

Allur ágóði af sölunni rennur til alþjóðlegra verkefna Barnaheilla sem styðja börn sem búa við ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun og vernd. Um er að ræða fallega gjafavöru með mikilvægan tilgang.

„Ég er þakklát fyrir áratuga framlag samtakanna í þágu réttinda, verndar og velferðar barna, bæði á Íslandi og víða um heim,“ sagði Halla Tómasdóttir, annar kvenforsetinn í sögu Íslands, þegar hún veitti fyrsta Vigdísarstokknum viðtöku á Bessastöðum í gær. „Börn eiga rétt á öryggi, vernd og tækifærum til að blómstra. Styðjum það markmið og spilum líka oftar við börnin okkar!“

Vigdís verndari Barnaheilla frá upphafi

Vigdís Finnbogadóttir tók þátt í stofnun félagsins á Íslandi árið 1989 og er nafn Barnaheilla úr hennar smiðju. Vigdís hefur verið verndari samtakanna frá upphafi.

Allur ágóði af sölu stokksins rennur til alþjóðlegra verkefna Barnaheilla í Síerra Leóne, Madagaskar, Tansaníu og Írak, þar sem Barnaheill vinna mikilvæg verkefni sem styðja börn sem búa við stríð, ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun.

Með Vigdísarstokknum vilja Barnaheill heiðra framlag Vigdísar og þau gildi sem hún hefur alla tíð staðið fyrir; jafnrétti, sjálfbærni, menntun og virðingu fyrir öllum börnum.

Hægt verður að kaupa Vigdísarstokkinn hér á heimasíðu Barnaheilla, en dagana 27. ágúst – 5. september verður stokkurinn einnig til sölu í fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess mun sölufólk víðsvegar um landið ganga í hús og selja spilastokkinn fyrir utan verslanir og verslunarkjarna. Barnaheill vilja þakka Rán Flygenring höfund bókarninnar um Vigdísi og Angústúru, sem er útgefandi hennar, fyrir gjöfult samstarf við framleiðslu á spilastokknum.

Styrktartónleikar Barnaheilla sunnudaginn 6. september kl. 20 í Salnum, Kópavogi

Lokahnykkur á haustsöfnuninni í ár verða styrktartónleikar Barnaheilla í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 6. september kl. 20:00 þar sem tónlistarfólkið Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram.

Miðaverðið rennur óskipt til að fjármagna skólabyggingu í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne og mun gjörbylta lífi og framtíð barna í þorpinu. Hægt er að kaupa miða á tónleikana hér.

Barnaheill hafa starfað í Síerra Leóne í fimm ár. Ákvörðunin um byggingu skólans var tekin í vettvangsheimsókn í fyrra þegar ljóst var að börnin í Macca stunduðu nám við óviðunandi aðstæður, þar sem skortur var á viðeigandi húsnæði og aðstöðu til náms. og því gátu börnin þar ekki nýtt sér þann stuðning sem Barnaheill veita í héraðinu. Verið er að leggja lokahönd á skólann, sem skapar þeim loksins tækifæri til menntunar og betri framtíð.