Halda ungmennaþing um ofbeldi til að heyra raddir unglinga
Barnaheill standa fyrir sex ungmennaþingum um allt land á næstu vikum til þess að ræða kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga. Fyrsta þingið var haldið í byrjun febrúar þar sem saman komu rúmlega 80 nemendur af fyrsta og öðru ári Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og úr efstu bekkjum allra grunnskóla á Suðurnesjum. Næsta ungmennaþing verður haldið 4. mars í Hafnarfirði, svo 5. mars á Akureyri, 16. mars á Ísafirði, 24. mars á Egilsstöðum, og loks 26. mars á Selfossi.
„Ástæðan fyrir því að við fórum af stað með þessi þing er fyrst og fremst sú að það er of mikið um ofbeldi innan náinna sambanda ungmenna, en þau fá of litla athygli og það eru fá úrræði í boði,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum í viðtali við sjónvarpsþáttinn Kastljós.

„Við erum alls ekki að sinna nógu vel forvörnum og fræðslu fyrir þennan málaflokk, og við erum að sjá, bæði af eigin reynslu og líka það sem gögn sýna okkur, að ungt fólk finnur sig mjög einmana í því að upplifa ofbeldi í nánum samböndum. Þau þora ekki að segja frá, og vita ekki hvert þau eiga að leita,“ segir hún.
Hlusta á það sem unga fólkið segir
Barnaheill telja að það þurfi að gera miklu betur, og því leituðu samtökin til dómsmálaráðuneytis um styrk til að halda þing með ungmennum á sex stöðum á landinu. Kolbrún segir að við sem samfélag eigum það til að undirbúa allskonar fyrir börn án þess að tala við þau, og það vilji Barnaheill alls ekki gera.
„Við viljum heyra hvað unga fólkið sjálft segir, hverju þau hafa áhyggjur af, hverju þau eru að kalla eftir – hvað þurfa þau til þess að við getum hjálpað þeim að brjóta upp ofbeldið þeirra á milli. Við viljum heyra þeirra rödd,“ útskýrir Kolbrún.
Of mikið um ofbeldi í nánum samböndum en of fá úrræði
Ýmis gögn og tölur sýna að of mikið er um ofbeldi í nánum samböndum ungs fólks. Samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni sem lögð var fyrir síðasta vor, eru ríflega 600 börn í 8.-10. bekk sem segja að annar unglingur hafi haft við þau munnmök eða samfarir gegn vilja þeirra, sem er auðvitað mjög alvarlegt ofbeldisbrot.
„Við sjáum þetta líka í ársskýrslu Stígamóta, þar sem er verið að fjalla um fræðsluna Sjúkást og Sjúkt spjall sem er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni. Þar eru að koma inn ungmenni sem eru í óheilbrigðum samböndum, þar sem þau eru þvinguð til að taka þátt í einhverju sem þau ekki vilja – það er verið að ógna, það er verið að hóta, það er verið að meiða,“ segir Kolbrún. „Á sama tíma eru þau að upplifa svo flóknar tilfinningar því þau elska viðkomandi og vilja vera í þessu sambandi, en vita ekki við hvern þau eiga að tala, eða hvernig þau eiga að laga þetta, og gera sambandið heilbrigðara – en það er enginn sem grípur þau.“
Hér vantar fræðslu og forvarnir, og því vilja Barnaheill breyta. Niðurstöður af ungmennaþingunum öllum verða því teknar saman og sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks nú á vordögum, með von um að þær nýtist til að byggja upp enn betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. april.
Fréttaskýringaþátturinn Kastljós gerði fyrsta ungmennaþinginu skil, en það var haldið í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ með 80 þátttakendum af öllum Suðurnesjum.
