Lög um grunnskóla, aðalnámskrá og grunnþættir menntunar eiga að tryggja börnum þau réttindi sem kveðið er á um í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og jafnframt að tryggja að þau fái menntun í mannréttindum.
Námsvefurinn barnasattmali.is og veggspjöld um Barnasáttmálann eru sérstaklega ætluð fyrir grunnskóla. Veggspjöldin og bækling má nálgast á námsvefnum. Grunnskólum og frístundaheimilum tengd grunnskólum er því sérstaklega bent á að vinna með það efni sem þar er að finna í tilefni af Degi mannréttinda barna. Á vefnum er ýmis fróðleikur og gagnvirk verkefni fyrir nemendur auk ýmissa upplýsinga fyrir kennara og foreldra um Barnasáttmálann og mannréttindi barna, ásamt kennsluhugmyndum. Gagnvirku verkefnin fyrir yngri börnin nefnast: Réttindi og forréttindi – Um Barnasáttmálann og aðrar skuldbindingar – Allir eru einstakir – Fjölskyldur – Skólinn. Fyrir eldri börnin eru gagnvirku verkefnin: Réttindi allra barna – Heilsa, menntun, þroski – Öryggi og vernd – Fjölskyldan
Í kennsluhugmyndum er bent á ýmis verkefni sem hægt er að vinna sem ítarefni við gagnvirku verkefnin á vefnum.
Í tilefni af Degi mannréttinda barna er kjörið að vinna þvert á árganga og stig og hafa afmælis- eða uppskeruhátíð í lokin með kynningu á verkefnum eða réttindagöngu þar sem áréttað er hvað er vel gert og hvað þarf að bæta og hvað þarf að gera til að uppfylla þau réttindi sem börn hafa samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hvað hefur áunnist frá því sáttmálinn var samþykktur og hvar er enn verk að vinna?
Þar sem því er komið við gætu allir grunnskólar sveitarfélagsins og jafnvel leik- og framhaldsskólar sameinast í réttindagöngu.
Grunnþættir mannréttinda barna
Grunnþættirnir eins og þeir birtast í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru vernd, umönnun og þátttaka:
Vernd: Í Barnasáttmálanum er kveðið á um vernd grundvallarmannréttinda barna, svo sem til lífs og þroska. Þau eiga jafnframt rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, gegn vanrækslu og einelti. Einelti getur átt rætur sínar að rekja allt niður í leikskóla með þvi að barn er útilokað frá leik eða sett er út á útlit eða athafnir þess. Mikilvægt er að koma í veg fyrir slíkt.
Umönnun: Öllum börnum á að tryggja velferð á sviði menntunar, heilbrigðis og félagsmála. Foreldrar bera meginábyrgð á uppeldi og umönnun barna sinna en allir þeir sem vinna með börnum eða að málefnum þeirra bera einnig ábyrgð – og það gera stjórnvöld líka.
Þátttaka: Öll börn eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í málum er þau varða og taka ber tillit til skoðana barna í samræmi við aldur þeirra og þroska. Jafnframt er mikilvægt að börnum sé leiðbeint við að setja sig í spor annarra, taka tillit og hlusta á aðra.
Við vinnu verkefnanna er gott að hafa þessa grunnþætti að leiðarljósi.
Hér eru að auki hugmyndir að viðfangsefnum sem hægt er að vinna sérstaklega í tengslum við Dag mannréttinda barna:
Verkefni unglingastigs eru kjörin til samþættingar námsgreina en einnig má nota þau sérstaklega í ákveðnum námsgreinum, svo sem í samfélagsfræði, stærðfræði, íslensku og öðrum tungumálum. Tilvalið er að nálgast bæklinga um Barnasáttmálann til að nýta við vinnuna. Bæklinginn má sjá hér.
1. Er farið eftir barnasáttmálanum?
Með innleiðingu Barnasáttmálans er átt við að ákvæði sáttmálans séu komin til framkvæmda, svo sem hjá sveitarfélögum eða skólum, þ.e. að ákvæði sáttmálans endurspeglist í raunverulegri vinnu með börn og/eða þar sem unnið er að málefnum þeirra. Kjörið er að vinna þvert á árganga og stig og/eða hafa uppskeruhátíð í lokin, svo sem með kynningu eða réttindagöngu þar sem áréttað er hvað er vel gert og hvað þarf að bæta.
- Nemendur kanni í sínu sveitarfélagi hvort einhver vinna sé í gangi við innleiðingu Barnasáttmálans hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess. Skoða vefsíðu bæjar- eða sveitarfélags, tala við starfsmenn.
- Nemendur skoði vefsíðu skólans og þær áætlanir sem þar eru með tilliti til hvort þær séu í samræmi við Barnasáttmálann. Þeir skoði einnig hvort orðið Barnasáttmáli komi einhvers staðar fyrir þar.
- Nemendur velji sér ákveðnar greinar Barnasáttmálans og skoði hvort þeim sé framfylgt í skólanum eða sveitarfélaginu. Dæmi um greinar til að skoða: 2, 3, 8, 12, 13, 15, 17, 24, 27, 32, 33, 34.
- Nemendur skoði greinar 2–40 og merki við hverjir eiga að sjá til þess að þeim sé framfylgt; foreldrar, skóli, sveitarfélag, ríki, allir þessir aðilar, aðrir og þá hverjir.
2. Bækur, bíó og bann við mismunun
Hvað hefur áunnist hvað varðar bann við mismunun í samfélaginu eða skólakerfinu frá því að Barnasáttmálinn var samþykktur árið 1989? Hér er hægt að skoða, námsbækur, barna- og unglingabækur sem skrifaðar voru fyrir daga Barnasáttmálans, kvikmyndir, ljósmyndir eða annað efni og bera saman við íslenskan veruleika nú á dögum, með tilliti til jafnréttis kynja, hlutverka kynjanna og staðalímynda, fatlaðra og ófatlaðra, kynvitundar, kynhneigðar eða annarrar stöðu barna eða fjölskyldna þeirra.
3. Dagblöð, vefmiðlar og samfélagsmiðlar
Hvernig er birtingarmynd barna og unglinga í þessum miðlum? Er hún samkvæmt þeim réttindum sem börn eiga samkvæmt Barnasáttmálanum? Hver er réttur barna til að aðrir fjalli ekki um þau í þessum miðlum, svo sem foreldrar þeirra?
4. Sjónvarpsþættir og kvikmyndir um börn og unglinga
Hver er birtingarmynd barna og unglinga og njóta sögupersónur þeirra réttinda sem kveðið er á um í Barnasáttmálanum? Valin er ein kvikmynd eða þáttaröð til að fjalla um eða nemendahópnum er skipt í minni hópa þar sem hver og einn velur sér viðfangsefni.
5. Bærinn minn og bann við mismunun
Ein grundvallargrein Barnasáttmálans er 2. grein þar sem kveðið er á um að öll börn skuli njóta réttinda sáttmálans og ekki megi mismuna þeim eftir stöðu þeirra eða foreldra þeirra.
Dæmi um verkefni:
- Nemendur lesi greinina og kanni hvernig samfélagið, sveitarfélagið þeirra eða skólinn uppfyllir þessa grein og hverju er ábótavant. Sem dæmi má nefna að öll börn eru í skóla og þannig er þeim ekki mismunað. Annað gildir um tómstundir. Sum þjónusta er gjaldfrjáls og geta því öll börn nýtt hana án tillits til efnahags foreldra, en annað kostar.
- Hvernig er þessari grein framfylgt í skólanum? Nemendur skoði til dæmis aðgengi fatlaðra og hvað er gjaldfrjálst og hvað ekki sem tengist skólanum.
6. Jákvæð mismunun
Sumir einstaklingar þurfa á einhverri aðstoð eða tækjum að halda til að standa jafnfætis öðrum. Dæmi um slíkt getur verið blindrahundur, hljóðbækur eða aðstoð við nám. Sumir einstaklingar geta þurft aukinn stuðning á einu sviði en hafa mikinn styrkleika á öðrum sviðum. Mikilvægt er að leggja áherslu á það að allir hafa einhverja styrkleika og á gildi margbreytileikans. Nemendur geta skoðað verkefni á barnasattmali.is sem tengjast jákvæðri mismunun, farið á vefmiðla, í bækur eða blöð og fundið dæmi um jákvæða mismunun eða þegar ekki hefur verið beitt jákvæðri mismunun þegar slíkt hefði verið við hæfi, búið til sögur, leikrit eða myndir um jákvæða mismunun.
7. Samanburður milli þjóða
Flest allar þjóðir heims hafa undirritað Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þar með skuldbundið sig til að uppfylla ákvæði hans. Hvernig er stuðningi við börn háttað erlendis? Ýmsar upplýsingar og verkefni er að finna á barnasattmali.is og globalis.is.
8. Réttur barna til að tjá sig og hafa áhrif
12. og 13. grein Barnasáttmálans fjallar um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum er þau varða og að réttmætt tillit sé tekið til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Hvernig er þessu framfylgt í skólanum og samfélaginu?
- Nemendur skrá niður að hvaða leyti þeir hafa áhrif á skólastarf, hverju væri hægt að breyta og hverju ekki? Hér gætu þeir skoðað nemendaráð og önnur ráð barna í skólanum og verksvið þeirra.
- Skoðanadagur: Einum degi eða dagparti er sérstaklega varið í að nemendur láti skoðanir sínar í ljós. Mikilvægt er að brýna fyrir þeim að vera málefnaleg og að ekki eigi að láta skoðanir í ljós um ákveðna einstaklinga heldur málefni.
- Skólaþing: Nemendur haldi þing þar sem þeir fjalla um einhver sérvalin málefni. Tilvalið er að velja málefni sem tengjast mannréttindum barna. Þingið gæti verið þannig að einhverjir nemendur eigi að vera meðmælendur málefnisins, aðrir mæla á móti og svo þarf að koma með niðurstöðu.
9. Einelti
Samkvæmt Barnasáttmálanum eiga öll börn rétt á vernd gegn öllu ofbeldi og vanrækslu. Einelti er ein tegund ofbeldis. Í einelti felst síendurtekin stríðni, niðurlæging, útilokun eða líkamleg misbeiting. Samkvæmt nýjustu rannsóknum á einelti, þá þrífst það í umhverfi þar sem lítið umburðalyndi er fyrir því að einstaklingar séu mismunandi, gjarnan í umhverfi sem barn hefur ekkert val um að vera í eða ekki, svo sem í skóla eða ákveðnum bekk. Horfið er frá því að skoða einelti út frá ákveðnum „gerendum og þolendum“ þar sem sami einstaklingur getur verið í mismunandi hlutverki við mismunandi aðstæður, í að skoða samskipti og skólabrag. Mikilvægt er að skólar leggi áherslu á gildi margbreytileikans og styrkleika hvers og eins og stuðli að vináttu og samkennd til að koma í veg fyrir einelti. Jafnframt að hvetja börn til að setja sér mörk, vera góður félagi allra og bregðast við ef þeir sjá aðra beitta órétti.
Verkefni:
- Hvernig vinnur skólinn að því að koma í veg fyrir einelti? Er eineltisáætlun í skólanum? Nemendur skoði áætlunina og meti. Telja þeir að einhverju þurfi að breyta? Er áætlunin eingöngu til að bregðast við einelti eða er reynt að koma í veg fyrir að einelti eigi sér stað.
- Vinir milli stiga: Nemendur á eldri og yngri stigum eru tengdir saman þar sem þeir eldri aðstoða þá yngri við ýmis verkefni, veita þeim leiðsögn og stuðning. Hér þurfa einkunnarorðin að vera virðing, vinátta og umhyggja. Verkefnin geta verið; skipulagðir leikir í frímínútum, lesa sögur, samvinna við ýmis verkefni í verk- og listgreinum svo sem heimilisfræði og aðstoð við nám.
- Vinaráð fyrir bekkinn: Bekkurinn býr til reglur um samskipti þar sem áhersla er á vinsemd, virðingu, jákvæðni, vináttu og umhyggju. Í vinaráðunum gæti verið; að tala aldrei illa um aðra nemendur eða fjölskyldu þeirra, að hrósa, að vera góð fyrirmynd, að vera öllum góður félagi, að styðja og hjálpa.
- Hrósdagur: Á þessum degi tala allir jákvætt um aðra nemendur, starfsfólk skóla, skólann eða annað. Hrósa hver öðrum og benda á það sem er gott í fari samnemenda og starfsfólks, einnig að hrósa sjálfum sér. Mikilvægt er að starfsfólk taki að fullu þátt í hrósdeginum. Margs konar útfærslur geta verið á svona hrósdegi eða dögum en mikilvægt er að útbúa einhvers konar skipulag og undirbúa vel, þannig að ALLIR fái hrós, því ALLIR hafa einhverja styrkleika.
10. Bekkjarreglur og skólareglur
Í öllum skólum eru skólareglur. Nemendur skoða reglurnar og meta hvort þær séu í samræmi við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hægt er að velja einstakar greinar. Sérstaklega mætti skoða reglurnar út frá 2. grein, 3. grein, 12. grein, 13. grein og 28. grein.
Verkefni:
- „Agi í skólum skal samrýmast mannlegri reisn barnsins og vera í samræmi við sáttmála þennan“ stendur í 28. grein Barnasáttmálans sem fjallar um menntun. Hvað er átt við með þessu. Endurspegla skólareglurnar þetta?
- Ef engar væru skólareglurnar. Nemendur semja sögur eða útfæra á annan hátt aðstæður sem geta skapast ef engar skólareglur væru í skólanum.
- Eiga að vera viðurlög við brotum á skólareglum? Umræður um mikilvægi þess að viðurlög séu uppbyggileg og til að breyta hegðun en ekki til að brjóta einstaklinginn niður.
11. Menntun og markmið menntunar
28. og 29. grein Barnasáttmálans fjallar meðal annars um rétt barna til grunnmenntunar án endurgjalds og að menntun eigi að gefa börnum tækifæri til að þroskast á eigin forsendum.
Verkefni.
- Gjaldfrjáls skóli: Er grunnskólinn gjaldfrjáls? Nemendur gera könnun í skólanum, svo sem í ákveðnum árgöngum eða öllum um kostnað foreldra vegna skólagöngu barna sinna. Hér má skoða innkaupalista, skólamáltíðir, vettvangsferðir eða aðrar ferðir, skemmtanir og fleira. Ef til vill geta nemendur borið saman nokkra skóla.
- Nemendur vinna með 28. og 29. grein. Finna upplýsingar um skólastarf frá því fyrir tíma Barnasáttmálans, eða frá árinu 1989 og bera saman við skólakerfið eins og það er í dag. Hvað hefur breyst? Þau gætu borið saman námskrár úr eigin skóla, skólareglur eða annað úr skólanum sínum. Á bókasöfnum sveitarfélaga má gjarnan finna upplýsingar um skólasögu sveitarfélagsins eða Íslands. Dæmi: Almenningsfræðsla á Íslandi 1880–2007 (ritstjóri Loftur Guttormsson).
- Menntun á heimsvísu: Nemendur finna upplýsingar og vinna verkefni á barnasattmali.is og globalis.is um skólagöngu barna í heiminum og hvað hefur breyst á undanförnum árum. Sérstaklega er vert að skoða skólagöngu stúlkna.