GASA: Hjálparsamtök krefjast tafarlausra aðgerða eftir niðurstöðu SÞ um þjóðarmorð
Barnaheill – Save the Children og forsvarsmenn 20 helstu hjálparsamtaka sem starfa á Gasa skora á leiðtoga heimsins að grípa strax til aðgerða eftir að rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komst að þeirri niðurstöðu að þjóðarmorð sé framið þar. Þetta er í fyrsta sinn sem SÞ notar orðið þjóðarmorð.
Í yfirlýsingunni vara samtökin við „algjörri útrýmingu lífs“ á Gasa þar sem yfir 65.000 Palestínumenn hafa verið drepnir, þar af meira en 20.000 börn. Nær öll, eða 2,1 milljón íbúa, hafa verið hrakin frá heimilum sínum og hungursneyð hefur verið staðfest.
Samtökin segja að nú sé tími til aðgerða. Þau hvetja aðildarríki SÞ til að beita öllum pólitískum, efnahagslegum og lagalegum úrræðum til að stöðva ofbeldi, binda enda á hernám og tryggja að mannúðarlögum sé fylgt.
Yfirlýsingin í heild sinni:
„Þegar leiðtogar heimsins koma saman hjá Sameinuðu þjóðunum í næstu viku, köllum við eftir að öll aðildarríki bregðist við í samræmi við umboð SÞ til að verja mannréttindi og koma í veg fyrir þjóðarmorð.
Það sem við verðum vitni að á Gasa er ekki aðeins fordæmalaus mannúðarkrísa heldur, eins og rannsóknarnefnd SÞ hefur nú staðfest, þjóðarmorð. Með þessari niðurstöðu bætist nefndin í vaxandi hóp mannréttindasamtaka og leiðtoga, einnig innan Ísraels, sem hafa komist að sömu niðurstöðu.
Gasa hefur vísvitandi verði gert óbyggilegt og ómannúðlegar aðstæður þar eru óverjandi. Yfir 65.000 Palestínumenn hafa verið drepnir, þar af 20.000 börn. Næstum allir íbúar eða 2,1 milljón hafa verið hraknir frá heimilum sínum, flestir oftar en einu sinni, inn á æ minni svæði þar sem ekkert bíður þeirra nema ótti, hungur og dauði. Heilu borgirnar hafa verið jafnaðar við jörðu, sjúkrahús og vatnsstöðvar eyðilagðar og hundruð þúsunda manns svelta.
Við höfum persónulega orðið vitni að hryllilegum þjáningum fólksins; börnum sem missa foreldra sína, fjölskyldum sem neyðast til að borða dýrafóður og fólki sem er skotið við matardreifingu. Síðan Ísraelski herinn herti umsátur sitt fyrir sex mánuðum og lokaði innflutning á mat, eldsneyti og lyfjum, höfum við séð börn og heilu fjölskyldurnar veslast upp af sulti. Börn geta hvorki sofið né talað, sum hafa sagst vilja deyja til að sameinast foreldrum sínum í himnaríki. Viðvaranir okkar hafa verið hunsaðar og æ fleiri líf glatast á hverjum degi.
Samt sem áður bregðast leiðtogar heimsins ekki við
Við höfum reynt allt sem við getum til að verja réttindi fólksins á Gasa og halda uppi mannúðaraðstoð, en við hvert skref sem við tökum eru lagðar nýjar hindranir í veg fyrir okkur.
Við krefjumst þess að aðildarríki SÞ bregðist við með öllum tiltækum pólitískum, efnahagslegum og lagalegum úrræðum. Stöðvi ofbeldið, bindi enda á hernámið og tryggi að alþjóðalögum sé fylgt. Orð og hálfkák duga ekki – hér þarf raunverulegar aðgerðir.
Sameinuðu þjóðirnar mótuðu alþjóðalög til að leggja grunn að friði og öryggi í heiminum. Lög sem ættu að vera skylda – ekki val. Ef aðildarríki SÞ framfylgja ekki þessum lögum bregðast þau ekki aðeins heiminum í dag heldur grafa þau undan framtíðinni. Við erum að falla á prófi mannúðar: við erum að bregðast heilli þjóð á Gasa sem og okkar eigin siðferðislegu ábyrgð.“
Undirskriftir:
Arthur Larok, framkvæmdastjóri ActionAid International
Othman Moqbel, framkvæmdastjóri Action For Humanity
Joyce Ajlouny, framkvæmdastjóri American Friends Service Committee
Sean Carroll, forseti og framkvæmdastjóri Anera
Reintje Van Haeringen, framkvæmdastjóri CARE International
Jonas Nøddekær, framkvæmdastjóri DanChurchAid
Charlotte Slente, framkvæmdastjóri Danish Refugee Council
Manuel Patrouillard, framkvæmdastjóri Humanity & Inclusion – Handicap International
Jamie Munn, framkvæmdastjóri International Council of Voluntary Agencies (ICVA)
Waseem Ahmad, framkvæmdastjóri Islamic Relief Worldwide
Joseph Belliveau, framkvæmdastjóri MedGlobal
Joel Weiler, framkvæmdastjóri Médecins du Monde France
Nicolás Dotta, framkvæmdastjóri Médecins du Monde Spain
Christopher Lockyear, framkvæmdastjóri Médecins Sans Frontières International
Kenneth Kim, framkvæmdastjóri Mennonite Central Committee Canada
Ann Graber Hershberger, framkvæmdastjóri Mennonite Central Committee US
Jan Egeland, framkvæmdastjóri Norwegian Refugee Council
Amitabh Behar, framkvæmdastjóri Oxfam International
Simon Panek, framkvæmdastjóri People in Need
Inger Ashing, framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children International
Donatella Vergara, forseti Terre des Hommes Italy
Rob Williams, framkvæmdastjóri War Child Alliance
