Fyrsta ungmennaráðið í sögu Íraks

Barnaheill – Save the Children á Íslandi og í Írak tóku þátt í sögulegum viðburði síðastliðinn desember, þegar stjórnvöld í Kúrdistan kynntu stofnun nýs ráðgjafaráðs ungmenna innan félags- og vinnumálaráðuneytis landsins. Þetta er afrakstur samstarfs Barnaheilla við stjórnvöld í Kúrdistan um aukin réttindi barna.

Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna, var fulltrúi Barnaheilla á fundinum, sem haldinn var í borginni Erbil í Írak. Kwestan Mohammed, félags- og vinnumálaráðherra og Alan Hama Saeed Salih, menntamálaráðherra í Kúrdistan voru gestgjafar viðburðarins, en  þátttaka ráðherranna undirstrikar sterkan pólitískan stuðning og þverfaglega sýn þeirra á réttindi ungmenna, félagslega vernd og tengsl milli menntunar og atvinnu.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu Íraks þar sem þátttaka ungmenna er samþætt inn í ráðuneyti ríkisins með svo formlegum hætti, en það veitir ungmennum varanlegt og stofnanabundið hlutverk í mótun stefnu á sviði réttinda barna. Þetta er því stór áfangi og markar raunverulegar framfarir fyrir þátttöku ungs fólks innan stjórnsýslunnar.

Um 200 boðsgestir sóttu viðburðinn, og voru þar á meðal fulltrúar opinberra stjórnvalda og stofnana, ýmissa félagasamtaka,  auk sendifulltrúa frá Þýskalandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og Suður-Kóreu. Kolbrún var meðal ræðumanna, og flutti erindi sitt á eftir félags- og vinnumálaráðherra.

Þar fjallaði hún um stöðu og öryggi barna á vergangi, en  í norðurhluta Íraks þar sem Barnaheill hafa starfað síðan apríl 2025, býr fjöldi barna við afar erfiðar aðstæður í flóttamannabúðum. Mörg börn hafa fæðst í búðunum án þess að hafa fengið fæðingavottorð eða önnur persónuskilríki og eru því án ríkisfangs. Þar skortir einnig aðgang að grunnþjónustu á borð við hreint vatn og heilbrigðisþjónustu. Kolbrún undirstrikaði hversu brýn þörf væri á aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við þeirri neyð sem þar ríkir.

Að erindunum loknum  tóku við pallborðsumræður, þar sem ungmenni og sérfræðingar á sviði málefna barna ræddu meðal annars um netofbeldi gegn börnum, aðgengi að öruggri dagvistun, félagslega vernd sem tekur mið af þörfum ungmenna, og þær áskoranir sem eru tengdar endurkomu og aðlögun ungs fólks sem snúið hefur aftur til Íraks eftir dvöl á flótta.