Þinn stuðningur

hefur áhrif!

Frjáls framlög frá einstaklingum og fyrirtækjum skipta sköpum fyrir starf Barnaheilla og gerir samtökunum kleift að standa vaktina í þágu barna og gæta réttinda þeirra. Helstu áherslumál Barnaheilla eru forvarnir gegn hverskyns ofbeldi á börnum. 

Velkomin til Barnaheilla

Save the children á Íslandi

Barnaheill eru frjáls félagasamtök sem stofnuð voru árið 1989 með það að markmiði að vinna að mannréttindum barna. Samtökin eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children sem stofnuð voru árið 1919.

Fræðsla og forvarnir

LÍKAMINN MINN

Bæklingurinn er hugsaður sem verkfæri sem aðstoðar fullorðna að ræða við börn um snertingu, mörk og kynferðisofbeldi á einfaldan og óþvingaðan hátt.

Mælt er með að fullorðnir skoði bæklinginn og lesi inngangsorð hans áður en lestur með barni hefst. 

VERTU HEILLAVINUR

 Börn um allan heim þurfa á vernd, menntun og öryggi að halda. Sem Heillavinur styður þú mánaðarlega við starf Barnaheilla – og hjálpar til við að breyta lífi barna í neyð. Þú velur upphæðina.

 

Lítið mánaðarlegt framlag getur breytt heiminum fyrir barn.

NÁMSKEIÐ

Við bjóðum upp á fjölda námskeiða og fyrirlestra þar sem hægt er að öðlast þekkingu, fræðslu og bæta verklag í forvörnum gegn ofbeldi á börnum. Upplýst umræða og fræðsla er besta forvörnin.

NETVERSLUN

Hafðu áhrif með því að styrkja starf okkar í þágu barna á Íslandi og um allan heim. Þinn stuðningur skiptir máli.

GÆTUM RÉTTINDA BARNA

Við hjá Barnaheillum gerum áþreifanlegt gagn í samfélaginu og gætum réttinda allra barna. Við höldum úti fræðslu og forvörnum, bregðumst við mannúðarkrísum, veitum þróunaraðstoð og leggjum ríka áherslu á að raddir barna heyrist. Við teljum að með því að tryggja velferð barna aukast líkur á velfarnaði þeirra síðar á lífsleiðinni.

Vinátta

Vinátta er forvarnaverkefni okkar gegn einelti. Í Vináttu er aðal áherslan lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir gegn einelti, samkennd, umhyggju, vináttu og vellíðan.

Heillabraut - ungmenni

Hefur þú spurningar varðandi kynheilbrigði, sambönd, samskipti eða jafnvel ofbeldi? Hefur þú áhyggjur af kynferðislegum hugsunum þínum? Hér má finna ýmsar vangaveltur og svör við pælingum ungs fólks.

Þróunar- og neyðaraðstoð

Í alþjóðastarfi okkar veitum við viðbrögð við neyð, bæði í kjölfar hamfara og aðstoð til fátækustu ríkja heims, þar sem lögð er áhersla á almenna velferð á grundvelli mannréttinda.

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN

Fáðu nýjustu fréttir og fróðleik frá okkur reglulega til þín með tölvupósti.


    NÝJAR FRÉTTIR OG FRÓÐLEIKUR

    Kynntu þér það helsta sem er að gerast í starfsemi okkar.
    Við setjum reglulega inn nýjar fréttir og fróðleik.

    Viðurkenning Barnaheilla 2026 – opnað fyrir tilnefningar

    Viðurkenning Barnaheilla 2026 – opnað fyrir tilnefningar

    Hver á skilið Viðurkenningu Barnaheilla? Tilnefningar eru opnar til 20. október 2026 Öllum er frjálst…

    Kalla eftir opnu samtali og meiri kynfræðslu – ungmennaþing á Norðurlandi vestra

    Kalla eftir opnu samtali og meiri kynfræðslu – ungmennaþing á Norðurlandi vestra

    Nemendur sem tóku þátt í ungmennaþingi Barnaheilla á Norðurlandi vestra kalla eftir meiri kynfræðslu og…

    Stjórn Ungheilla stækkar og Liðsfélagar boðin velkomin

    Stjórn Ungheilla stækkar og Liðsfélagar boðin velkomin

    Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla fagnaði viðburðaríku starfsári á nýafstöðnum aðalfundi félagsins. Á fundinum fór Indriði…

    Skólinn risinn í Síerra Leóne – Barnaheill þakka öllum sem styrktu verkefnið

    Skólinn risinn í Síerra Leóne – Barnaheill þakka öllum sem styrktu verkefnið

    Skólinn sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi eiga veg og vanda að, er…