Flotinn og amma Andrea hlutu Viðurkenningu Barnaheilla 2024

Barnaheill – Save the Children á Íslandi veittu Flotanum – flakkandi félagsmiðstöð og Andreu Þórunni Björnsdóttur, eða ömmu Andreu, árlega Viðurkenningu Barnaheilla við hátíðlega athöfn fyrr í dag. Var þetta í 23. sinn sem Barnaheill veita einstaklingum, verkefnum eða öðrum viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra. Þetta er þó í fyrsta sinn sem tvær viðurkenningar eru afhentar.

Viðurkenningin er veitt 20. nóvember ár hvert – því á þessum degi árið 1989 var barnasáttmálinn samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og liggur því beinast við að dagurinn sé helgaður honum og sjálfsögðum mannréttindum barna.

„Það er okkur hjá Barnaheillum sönn ánægða að veita Flotanum – flakkandi félagsmiðstöð og ömmu Andreu Viðurkenningu Barnaheilla árið 2024 fyrir ómetanleg störf sín í þágu barna og eljuna við að bæta samfélagið börnum í hag,“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Barnaheilla.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti Karenu Rún Helgadóttur og Hjörleifi Steini Þórissyni frá Flotanum og Ömmu Andreu viðurkenninguna og hélt stutt ávarp.

Auk viðurkenningarinnar ákváðu Barnaheill að veita viðurkenningarhöfum í fyrsta sinn peningastyrk að upphæð 500 þúsund krónur sem nýta á í þau frábæru verkefni sem þau halda úti.

„Barnaheill eru frjáls félagasamtök sem leggja áherslu á að gera heiminn betri fyrir börn. Með þessu fjárframlagi sem rennur í forvarnarstarf Flotans og samfélagsverkefni Ömmu Andreu teljum við okkur vera að styðja við það frábæra og óeigingjarna starf sem þau vinna í þágu barna og ungmenna á Íslandi“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.

Barnaheill óska viðurkenningarhöfum innilega til hamingju og hlakka til að fylgjast með starfsemi þeirra áfram.

Um verðlaunahafa
Flotinn

Starf Flotans er í eðli sínu forvarnarstarf þar sem unnið er með viðhorf og atferli unglinga í átt til heilbrigðs lífsstíls og virkni í samfélaginu líkt og gert er í félagsmiðstöðvastarfi. Í umsögninni sem fylgdi einni tilnefningunni segir Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð er gríðarlega mikilvægt verkefni sem snýr að því að stuðla að öryggi og velferð unglinga, vinna að forvörnum og draga úr áhættuþáttum í umhverfi unglinga.

Í starfi Flotans ferðast starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar um borgina (oft utan opnunartíma félagsmiðstöðva) með það að markmiði að kortleggja stöðu á áhættuhegðun meðal unglinga og mynda tengsl við unglinga í viðkvæmri stöðu, vera til staðar fyrir þau, byggja upp traust og stuðla þannig að öryggi þeirra.

Amma Andrea

Andrea Þórunn Björnsdóttir, sem gengur undir nafninu amma Andrea, er mörgum kunn á Akranesi og víðar fyrir góðmennsku sína og náungakærleik. Í fjölda ára hefur hún staðið fyrir söfnunum til að styðja við fjölskyldur sem eiga um sárt að binda vegna veikinda eða annarra áfalla.

Framtak Andreu er einstakt og ósérhlífið en myndi ekki ganga upp nema vegna aðkomu þeirra sem gefa söluvarning og þeirra sem kaupa hann eða styrkja starfið að öðru leyti. Því má segja að þetta góðverk ömmu Andreu sé fyrirmyndar samfélagsverkefni þar sem stórkostlegt einstaklingsframtak hennar sé öðrum hvatning til að láta gott af sér leiða.