Að hlusta Að bregðast við Að tilkynna grun um ofbeldi Að vera á varðbergi Að þegja ekki Að ræða óþægilega hluti Efast ekki Að grípa inn í óeðlilegar aðstæður Að taka börn alvarlega Að taka afstöðu gegn kynferðisofbeldi Að þagga ekki Að trúa barni sem segir frá Að vera til staðar Að skipta mér af Að hafa augun opin

Ég lofa

ÉG LOFA er ákall til fullorðinna í samfélaginu um að leggja sitt af mörkum til að útrýma kynferðisofbeldi gegn börnum á Íslandi. Of mörg börn verða fyrir kynferðisofbeldi og of fá börn segja frá ofbeldinu. Með því að tala opinskátt um kynferðisofbeldi gegn börnum og með því að fræða okkur þá aukum við líkur á því að fleiri börn segi frá og því erfiðara verður fyrir gerendur að fela sig í skjóli þagnarinnar.

STAÐREYNDIR

0 %

Brotaþola kynferðisbrota sem
rötuðu til lögreglu árið 2025 voru undir 18 ára aldri

0

Tilkynningar bárust til lögreglu um barnaníðsefni þ.e. kynferðislegar ljósmyndir og myndbönd af börnum árið 2025

0

Einstaklingar leituðu til Stígamóta árið 2024 vegna kynferðisofbeldis sem átti sér stað fyrir 10 ára aldur

0

Börn á aldrinum 13-15 ára sögðu einhvern fullorðinn (eða a.m.k 5 árum eldri) hafa haft við þau munnmök eða samfarir einhvern tíma á ævinni

0

Tilkynningar bárust til Barnaverndar vegna kynferðisofbeldis gegn barni árið 2025

FRÆÐSLUEFNI

Fræðsla og ráðgjöf í boði

Fræðslumolar fyrir fullorðna

Fræðslumolar fyrir ungmenni

HVERNIG TEK ÉG ÞÁTT?

  1. Lakkið nöglina á litlaputta, þið getið verið ein eða í hóp, t.d. vinnustaðurinn, íþróttaliðið eða saumaklúbburinn
  2. Takið mynd eða myndband og segið frá loforðinu ykkar á samfélagsmiðlum
  3. Skorið á aðra að gera það sama

MYNDBÖND

Góð og slæm leyndarmál

Rauðu ljósin

Hvernig tala ég við börn um kynfærin og snertingar

Taktu þátt

EFNI / BÆKLINGAR

Líkaminn minn
Kynferðisbrot milli systkina
Hlustið og styðjið
Bælkingur fyrir ungmenni

ÚRRÆÐI OG AÐSTOÐ

Ef þig grunar að barn hafi verið beitt kynferðisofbeldi er best að hafa samband við Barnavernd eða lögreglu. Ef þú ert ekki viss þá getur þú hringt og fengið leiðbeiningar bæði hjá Barnavernd í þínu sveitarfélagi eða hjá Barnahúsi í síma: 530-2500

Þú getur óskað eftir ráðgjöf hjá barnaheill@barnaheill.is ef þú veist ekki hvert þú átt að leita eða upplifir þig ekki hafa fengið svör eða aðstoð annarsstaðar.

Stígamót bjóða viðtöl fyrir aðstandendur
Taktu skrefið er sálfræðiaðstoð fyrir þá sem hafa áhyggjur af kynhegðun sinni eða hafa brotið af sér kynferðislega
Bjarkahlíð, Bjarmahlíð, Sigurhæðir eru fyrir þolendur ofbeldis
Kvennaathvarfið er fyrir konur og kvár sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi
Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis er á Landspítala Fossvogi

0