ÉG LOFA
Í dag hefst vitundarvakning Barnaheilla – Save the Children ÉG LOFA sem stendur frá 20.-29. apríl. ÉG LOFA snýst um að vekja fólk til vitundar um umfang kynferðisofbeldis gegn börnum á Íslandi og hvetja það til að leggja sitt af mörkum til að útrýma slíkum brotum úr samfélaginu. Of mörg börn eru beitt kynferðisofbeldi og alltof fá þeirra segja frá ofbeldinu.
Barnaheill hafa einnig unnið bækling og fræðsluefni um kynferðisbrot á milli systkina sem birtist á vef samtakanna í dag, og markar þannig upphaf herferðarinnar. Algjör þagnarmúr hefur umlukið slík brot, og fá úrræði eru í boði fyrir fjölskyldur og börn sem eru í þeim aðstæðum. Kynferðisbrot á milli systkina eru algengari en flesta grunar, og það er mikilvægt að opna á umræðu um þessi mál. https://barnaheill.is/heillabraut/kynferdisbrot-milli-systkina/
Gefðu loforð í sumargjöf
Þetta er í annað sinn sem Barnaheill efna til herferðarinnar ÉG LOFA, en apríl er alþjóðlegur mánuður vitundarvakningar um kynferðisbrot gegn börnum. Með því að tala opinskátt um kynferðisofbeldi gegn börnum og með því að miðla upplýsingum og fræðslu þá aukum við líkur á því að fleiri börn segi frá, og erfiðara verður fyrir þá sem brjóta af sér að fela sig í skjóli þagnarinnar.
Við hvetjum fólk til að taka virkan þátt í ÉG LOFA herferð Barnaheilla með því að gefa loforð um að vernda börn gegn kynferðisofbeldi og rjúfa þögnina sem umlykur þessi mál. Við getum lofað því að hlusta, trúa, bregðast við, styðja og tilkynna. Við getum lofað að kynna okkur hætturnar á netinu, að þekkja rauðu flöggin og vita hvaða úrræði eru í boði.
Opinn fræðslufundur um kynferðisofbeldi gegn börnum
Mánudaginn 27. apríl verður boðið upp á opinn fræðslufund um kynferðisofbeldi gegn börnum. Rætt verður um mikilvægi þess að setja upp fjölbreyttar hindranir fyrir mögulega gerendur og hvernig má vera vakandi fyrir rauðu ljósunum bæði hjá börnum og fullorðnum. Einnig verða helstu birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn börnum skoðaðar og ljósi varpað á stöðuna á Íslandi í dag. Að lokum verður farið yfir viðbrögð og úrræði sem hægt er að leita í ef barn segir frá kynferðisofbeldi.
Fræðslufundurinn er fyrst og fremst hugsaður fyrir forsjáraðila og fólk sem vinnur með eða í þágu barna. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Heillabrautar, sem er ofbeldisforvarnar- og kynheilbrigðisverkefni Barnaheilla, sér um fræðsluna.
Niðurstöður ungmennaþinga Barnaheilla um ofbeldi í nánum samböndum
Á lokadegi ÉG LOFA herferðarinnar, miðvikudaginn 29. apríl, verður haldið málþing þar sem niðurstöður af ungmennaþingum um ofbeldi í nánum samböndum, sem haldin voru á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Ísafirði verða kynntar. Dómsmálaráðuneyti veitti styrk fyrir ungmennaþingunum. Á málþinginu verður ráðamönnum, fagaðilum og ungmennum boðið að eiga virkar samræður um kynferðisbrot og ofbeldi í nánum samböndum. Niðurstöður af þingunum verða svo sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, og verða vonandi nýttar til að byggja upp betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna.
