Börnin í Úkraínu bera þyngstu byrðarnar eftir fjögur ár af stríði

Í fjögur ár hafa börn í Úkraínu búið við stöðugan ótta um að sprengjuregn kunni að granda heimilum þeirra og fjölskyldum, allt frá því að Rússland réðst inn í landið þann 24. febrúar 2022. Þessi viðvarandi ógn hefur haft gríðarleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu úkraínskra barna. Stór hluti þeirra glímir við þrálátan kvíða og meltingarvandamál, hreinlega vegna áfallastreitu, segja starfsmenn Barnaheilla – Save the Children í Úkraínu.

Stríðið hefur stigmagnast síðustu mánuði og viðvörunarsírenur um yfirvofandi sprengjuárásir hljóma oft á dag í höfuðborginni Kyiv og í nágrenni við víglínuna. Varla líður sá dagur eða nótt sem fólk þarf ekki að leita vars í neðanjarðarbyrgjum og nú vex úr grasi ný kynslóð barna sem aldrei hefur upplifað frið.

Á þeim fjórum árum sem stríðið hefur varað, hafa að minnsta kosti 763 börn látið lífið og 2.500 særst í átökum, auk þess sem flest börn í Úkraínu hafa upplifað áföll, missi og óöryggi. Átök liðinna mánaða hafa einkum beinst að orkuinnviðum og milljónir heimila eru því án rafmagns og hita. Af sömu sökum hefur ekki verið hægt að opna skóla á ný  eftir jólafrí.  

Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children hafa verið með starfsemi í Úkraínu frá árinu 2014, en síðan innrás Rússlands var gerð fyrir fjórum árum hafa samtökin stóraukið verkefni sín til að bregðast við vaxandi neyð. Barnaheill á Íslandi hafa frá upphafi stríðsins lagt fram fjármagn í neyðarsjóð samtakanna fyrir Úkraínu.

Aðgerðir samtakanna beinast nú að því að styðja við börn og fjölskyldur þeirra og veita þeim lífsnauðsynlega þjónustu og hjálpargögn, vernd og menntun. Á þessum fjórum árum hafa um 4,7 milljónir manns notið stuðnings Barnaheilla – Save the Children, þar af um 2 milljónir barna.   Alþjóðasamtök Barnaheilla – Save the Children halda einnig úti barnvænum svæðum, þar sem börn geta leitað skjóls, leikið sér, og fengið kennslu og sálrænan stuðning.

Fjárhagsstuðningur og lífsviðurværi:  

Við höfum stutt 20.500 manns við að byggja aftur upp lífsviðurværi sitt með því að veita fjárhagslegan stuðning og landbúnaðarstyrki. Við höfum sett á laggirnar samfélagsverkefni til að styrkja heimafólk til forystu, auka færni þess og tækifæri í heimabyggð.

Barnavernd:

Við veittum 77.800 börnum mikilvægt öryggi með því að reka barnvæn svæði þar sem þau geta stundað nám, leikið sér og fengið sálrænan stuðning. Við höfum einnig  hjálpað til að vernda börn fyrir hættum eins og jarðsprengjum. Við höfum veitt samstarfsaðilum á vettvangi og í nærsamfélögum þjálfun til að byggja upp þá færni sem þarf til að annast börn til langs tíma litið.

Við studdum 148.200 börn í gegnum fjarnám og með endurbótum á skólum og leikskólum.

Hreinlæti og skjól:

Við veittum 165.400 manns nauðsynjavörur, öruggt skjól og bættar hreinlætisaðstæður.

Barnaheill hafa einnig haldið áfram að styðja við fjölskyldur sem hafa flúið til Póllands, Rúmeníu og Litháens, þar á meðal með því að veita yfir 21.300 börnum og ungmennum menntun, vernd og velferðarstuðning árið 2025.

Börn í Úkraínu hafa sýnt ótrúlega seiglu og þrautseigju. En seigla er ekki nóg ein og sér. Þau þurfa okkar stuðning.