Börn á flótta eiga ekki heima í fangelsi
Alþingi hefur nú til umfjöllunar frumvarp dómsmálaráðherra um svokallaða „brottfararstöð“. Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggjast eindregið gegn frumvarpinu. Verði það að lögum, að lögum, þá verður ekki einungis lögfest heimild til að frelsissvipta fólk sem ekkert hefur brotið af sér, heldur munu stjórnvöld fá heimild til að vista börn í varðhaldi.
Barnaheill gerðu á fyrri stigum málsins athugasemdir við fjölda atriða sem ekki var brugðist við. Raunar versnaði staða barna í frumvarpinu eftir að ráðuneytið vann úr umsögnum sem bárust í samráðsgátt. Frumvarpið gengur verulega gegn ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Barnaheill leggja höfuðáherslu á að ekki á að líðast að hneppa börn í varðhald fyrir það eitt að vera á flótta. Lögfesting slíkra ákvæða væri stórt skref í ranga átt hvað varðar réttindi barna.
Helstu athugasemdir Barnaheilla
Með frumvarpinu er lagt til að stjórnvöld starfræki svokallaða brottfararstöð, sem Barnaheill telja ekki réttnefni heldur væri nær að tala um lokaðar varðhaldsbúðir, sem m.a. er ætlað að vista fólk í aðdraganda þvingaðrar brottvísunar eftir synjun umsóknar um alþjóðlega vernd.
Athugasemdirnar eru eftirfarandi:
Börn á flótta eiga ekki heima í fangelsi. Gildir þar einu þótt fundin séu ný og hljómfegurri orð til að lýsa lokuðum varðhaldsbúðum. Boðað varðhald samrýmist ekki 3. gr. Barnasáttmálans um það sem barninu er fyrir bestu.
Frumvarpið boðar umhverfi sem er fjandsamlegt börnum og að eftir því sem ráðuneytið hefur unnið lengur með málið hefur staða barna versnað í því.
Barnasáttmálinn er ítrekað ekki virtur í frumvarpinu. Þar má nefna 24. gr. um rétt á heilbrigðisþjónustu, 28. gr. um aðgang að menntun, 31. gr. um aðgang að leik og tómstundum og 37. gr. um börn í haldi.
Víðtækar heimildir eru fyrir því að beita börn þvingunum, aðskilja þau frá öðrum vistmönnum og vista þau ein í öryggisklefa, án þess að til standi að viðhafa eftirlit með þeim alvarlegu þvingunaraðgerðum.
Ítarlegar er farið yfir sjónarmið Barnaheilla í umsögn sem hefur verið send Alþingi, en flest helstu mannréttindasamtök landsins hafa skilað sambærilegum umsögnum við málið. Barnaheill vona að Alþingi sjái að í frumvarpinu er vikið frá eðlilegri og mannúðlegri meðferð fólks á flótta – og þá sérstaklega barna á flótta.
