Upphaf Barnasmáttmálans

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er útbreiddasti mannréttindarsamningur heims og Barnaheill eru stolt af því að Eglantyne Jebb, stofnandi alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children, er upphafs manneskja Barnasáttmálans. Við lok fyrri heimstyrjaldarinnar setti Eglantyne fram þá hugmyndafræði að börn eru einstaklingar, ekki eignir fullorðinna, og eigi því skilið að njóta eigin grundvallarréttinda.

Með þessa hugmyndafræði í farteskinu samdi hún hina sögulegu Genfaryfirlýsingu um réttindi barna og hvatti Þjóðabandalagið, sem nú eru Sameinuðu þjóðirnar, til að útbúa sáttmála fyrir börn til að tryggja réttindi þeirra um vernd og umönnun.

Réttindi barna viðurkennd

Þann 26. September 1924 samþykkti Þjóðabandalagið yfirlýsingu Eglantyne og var þá í fyrsta sinn opinberlega lýst yfir að börn ættu sín eigin réttindi. Þar komu grundvallar mannréttindi barna um rétt til menntunnar, verndar á neyðartímum, fæðu og öryggis gegn misnotkun skýrt fram. Yfirlýsing Eglantyne breytti lífi kynslóða barna og markaði upphaf framfara því seinna meir varð hún upphafið af Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.

Barnasmáttmálinn var samþykktur á alsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989 og liggur því beinast við að dagurinn sé helgaður honum. Á Íslandi var Barnasmáttmálinn undirritaður á Alþingi árið 1990 og svo lögfestur á Alþingi árið 2013.  Með aðild að Barnasáttmálanum skuldabindir Íslands sig til að grípa til allra nauðsynlegra og viðeigandi ráðstafana til að innleiða hann að fullu á öllum sviðum samfélagsins.

Saga Barnaheilla samofin Barnasmáttmálanum

Margt hefur áunnist í málefnum barna frá því sáttmálinn var samþykktur en ennþá eru þó fjölmargar áskoranir í réttindarbaráttunni og því alltaf nauðsynlegt að standa sterkan vörð um mannúð og sjálfsögð mannréttindi barna. 

Að standa vörð um réttindi barna er saga Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, saga fortíðar, saga nútíðar og saga framtíðar.

 
Nálgast má allar upplýsingar um Barnasáttmálann með því að smella á boxin hér neðar. 

 

 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa að fræðsluvefnum, barnasattmáli.is og útgáfu fræðsluefnis ásamt umboðsmanni barna, Unicef á Íslandi og Menntamálastofnun. Prentútgáfu af Barnasáttmálanum má nálgast hér: