Barnakórar hjálpa Barnaheillum að byggja skóla í Síerra Leóne
Barnakórar Dalskóla, Ingunnarskóla, Vogaskóla, Rimaskóla og Lindaskóla héldu tvenna tónleika til styrktar Barnaheillum sem haldnir voru fyrir fullu húsi í Lindakirkju í Kópavogi, og Guðríðarkirkju í Grafarholti.

Jóhanna Halldórsdóttir söngkona stjórnar öllum skólakórunum fimm, og þetta er í tíunda sinn sem kórar undir hennar stjórn syngja til að styðja starf samtakanna. Aðgangseyrir beggja tónleika rann óskiptur til Barnaheilla, og nam rétt tæpum 1,2 milljónum króna.
Nýr skóli næsta haust
Fénu verður varið til byggingar á skóla í Síerra Leóne, þar sem Barnaheill hafa starfað með stuðningi utanríkisráðuneytis frá árinu 2021, með áherslu á vernd gegn ofbeldi á börnum. Samtökin eru að vinna þar í tíu afskekktum samfélögum í Pujehun, sem er fátækasta hérað landsins.
Samkvæmt nýlegri úttekt á verkefninu hafa samtökin náð framúrskarandi árangri í starfi sínu þar, og því var ákveðið að útvíkka það og ná til fleiri samfélaga. Barnaheill vinna nú að byggingu skóla í einu þorpinu þar sem enginn var fyrir, og er áætlað að skólabyggingin verði tilbúin nú í haust svo börnin geti hafið þar nýtt skólaár. Áætlaður kostnaður við byggingu skólans er um 12 milljónir króna, þannig að styrkurinn frá barnakórunum nemur um 10% af heildarkostnaði.
Barnaheill þakka kærlega fyrir stuðninginn

Kórarnir fluttu skemmtileg lög til að fagna vori og sumarkomu og stóðu sig frábærlega. Á hverju ári er svo sérstökum gestum boðið að taka þátt í tónleikunum, og í þetta sinn mættu Væb-bræður til leiks. Þeir fluttu með krökkunum lagið sem þeir sömdu fyrir Barnamenningarhátíð í Reykjavík í ár.
Barnaheill vilja þakka öllum krökkunum í skólakórunum og þeim sem sóttu tónleikana í Lindakirkju og Guðríðarkirkju innilega fyrir stuðninginn.
