Barnaheill gefa leikskólum landsins bingópakka
Í framhaldi af Evrópuverkefni sem Barnaheill tók þátt í um forvarnir og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum létum við framleiða líkamshlutabingó og gáfum 100 leikskólum um allt land.
Í bingópakkanum eru 25 bingó spöld í A4 og 16 spjöld fyrir kennara í A6. Þar sem eftirspurn eftir bingópökkunum er mikil, og öll eintökin sem við létum gera eru rokin út, geta leikskólar og aðrir látið prenta sín eigin bingóspjöld.
Hægt er að hafa samband við Barnaheill til að fá prentskjölin.
Í kennsluefni, sem er afrakstur Evrópuverkefnisins, má sjá bingóspjöldin en auk þess er þar fjöldinn allur af leikjum og verkefnum sem öllum er frjálst að nýta.