Barnaheill vara við hungursneyð á Madagaskar
Barnaheill – Save the Children vara við hungursneyð sem vofir yfir Madagaskar á næstu mánuðum verði ekkert að gert. Óttast er að eitt af hverjum tíu börnum undir fimm ára aldri muni þjást af bráðri vannæringu og þurfi á tafarlausri læknismeðferð að halda. Verst er ástandið í suðurhluta eyjunnar þar sem Barnaheill á Íslandi starfa að auknu fæðuöryggi barnafjölskyldna, með stuðningi utanríkisráðuneytis.
„Börn eru alltaf fyrst til að líða skort og verða verst úti þegar fæðuöryggi er ógnað,“ segir Tótla I Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Við vitum að fjölskyldur þeirra sem nú eru í mestri hættu eiga þegar í erfiðleikum með gefa þeim mat og verða að senda börnin sín svöng í háttinn. Þetta er afleit staða fyrir mæður sem leggja allt í sölurnar einungis til að halda börnum sínum á lífi.“
Hamfarahlýnun hefur valdið miklum uppskerubresti á síðustu árum vegna mikilla þurrka í suðri og flóða og fellibylja í norðri. Allt stefnir í að um 4 milljónir íbúa, eða um 10% þjóðarinnar, standi frammi fyrir hungursneyð snemma á næsta ári, samkvæmt gögnum frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, Barnaheill – Save the Children og tuttugu annarra alþjóðlegra mannúðarsamtaka sem sjá um sameiginlega vöktun á fæðuöryggi um allan heim.
Um hálf milljón barna undir 5 ára er þegar í bráðri hættu vegna vannæringar. Þá eru nú um 21.000 verðandi mæður og konur með börn á brjósti farnar að sýna einkenni bráðrar vannæringar.
Ástandið hefur versnað gífurlega á þessu ári og án neyðaraðstoðar gætu hundruð þúsunda barna til viðbótar beðið varanlega skaða af völdum vannæringar.
„Við verðum að grípa til aðgerða strax, áður en þúsundum fjölskylda er ýtt fram af ystu nöf,“ segir Tótla.
Barnaheill – Save the Children skora á alþjóðasamfélagið að bregðast við með meiri fjárframlögum og verkefnum sem stuðla að meiri sjálfbærni íbúa, áður en fæðuóryggið verður að hungursneyð um allt land.
