Barnaheill – Save the Children aðstoða börn og fjölskyldur vegna jarðskjálfta í Venesúela

Jarðskjálftar í Venesúela

Barnaheill – Save the Children í Venesúela eru að aðstoða börn og fjölskyldur eftir að tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir norðvesturhluta landsins. Viðbragðsaðilar vinna nú í kapp við tímann að bjarga fólki úr rústum húsa.

Skjálftarnir voru 7,2 og 7,5 að stærð. Ljóst er að hundruð hafa látist, þúsundir særst og fjölmargra er saknað. Ástandið er verst í héraðinu La Guaira þar sem upptök skjálftanna voru, en byggingar hrundu einnig í höfuðborginni Caracas.

„Börn eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu eftir þessa jarðskjálfta. Margar fjölskyldur hafa misst heimili sín og hafast við á opnum svæðum. Slíkar aðstæður valda miklum ótta hjá börnum,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla.

„Við vitum af fyrri reynslu að börn þurfa brýnan stuðning til að fá aðgang að húsaskjóli, mat, vatni og heilbrigðisþjónustu sem allra fyrst. Þau kunna einnig að hafa verið aðskilin frá fjölskyldum sínum í ringulreiðinni og eru í mikilli hættu á að verða fyrir misnotkun og ofbeldi.“

Barnaheill í Venesúela brugðust skjótt við og hafa nú þegar tryggt sem svarar 190 milljónum króna úr viðbragðssjóði samtakanna sem Barnaheill á Íslandi styðja með árlegu framlagi. Samtökin vinna nú að því að meta aðstæður á vettvangi ásamt samstarfsaðilum á staðnum við að skilgreina brýnustu þarfir og stuðning við börn og fjölskyldur á hættusvæðum sem búið er að rýma.