Barnaheill hefja neyðarsöfnun til að hefta útbreiðslu ebólu
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa hrundið af stað neyðarsöfnun vegna útbreiðslu ebóluveirunnar sem nú geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Enn á ný er lífi barna og fjölskyldna ógnað af þessum banvæna faraldri, en þetta er í sautjánda sinn sem ebóla blossar upp í landinu síðan veiran greindist þar fyrst fyrir 50 árum.
Ebóla breiðist nú út með ógnarhraða í austurhluta landsins, og hefur faraldurinn nú þegar kostað hundruð mannslífa. Ebólutifelli hafa einnig greinst í nágrannaríkinu Úganda. Börn eru meðal þeirra sem verða verst úti vegna faraldursins. Þau eiga á hættu að missa foreldra eða aðra umönnunaraðila, missa úr skóla og glíma við afleiðingar veikinda og ótryggra aðstæðna.
Starfsfólk Barnaheilla – Save the Children í Kongó leggja nú nótt við dag í vinnu við að vernda börn og fjölskyldur, og reyna að hefta útbreiðslu veirunnar. Við höfum þegar gripið til neyðaraðgerða í samstarfi við stjórnvöld,sem beinast að því að:
- Stöðva smit
- Vernda börn og heilbrigðisstarfsmenn
- Veita íbúum fræðslu og upplýsingar um smit og smitvarnir
- Veita stuðning við fjölskyldur sem eru útsettar fyrir smiti
Börn hafa þegar orðið fyrir miklum áhrifum af faraldrinum og skýrslur heilbrigðisyfirvalda staðfesta að 25% þeirra sem hafa látist eru börn. Einkenni þessa afbrigðis ebóluveirunnar eru svipuð og við algengum sjúkdómum á svæðinu eins og malaríu, niðurgangi, lungnabólgu og vannæringu, sem eykur hættuna á rangri sjúkdómsgreiningu og gerir börn enn útsettari fyrir smiti. Ungum börnum getur hrakað hratt vegna skorts á réttri greiningu og umönnun.
Ebóla er alvarlegur og oft banvænn sjúkdómur sem smitast með beinni eða óbeinni snertingu við líkamsvökva, mengað efni eða sýkt yfirborð. Ebóla getur einnig smitast við umönnun veikra sjúklinga eða með óöruggum greftrunaraðferðum. Faraldurinn sem nú geisar er af Bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar, sem er afar sjaldgæft og því er hvorki til viðurkennt bóluefni né sértæk meðferð við því.
Síendurtekin átök á þessu landssvæði hafa hrakið fólk á flótta og veikt alla innviði samfélagsins, sérstaklega heilbrigðiskerfið. Áður en ebólufaraldurinn braust út, var þar fyrir ein alvarlegasta mannúðarkrísa heims þar sem um 15 milljónir manna reiða sig á mannúðaraðstoð til að lifa af.
Barnaheill – Save the Children hafa starfað í Kongó frá árinu 1994 og eru með víðtæk verkefni á þeim svæðum sem hafa orðið verst úti í faraldrinum. Barnaheill – Save the Children á Íslandi kalla eftir stuðningi við neyðaraðstoð og smitvarnir. Björgum lífi barna og fjölskyldna þeirra.
