Barnaheill hefja loftslagsverkefni í Madagaskar 

Í dag, fimmtudaginn 1. maí, hefst formlega nýtt loftslagsverkefni Barnaheilla í Madagaskar, með stuðningi utanríkisráðuneytis Íslands. Verkefnið sem ber heitið Miavotse mun ná til 4.000 barna og fullorðinna í Androy héraði á sunnanverðri eyjunni og stendur yfir í 18 mánuði. Verkefnið miðar að því að tryggja velferð barna og draga úr fátækt á þurrkasvæðum. 

,,Madagaskar er eitt þeirra ríkja sem hefur orðið hvað mest fyrir áhrifum loftslagsbreytinga á undanförnum árum. Þar hefur hitastig hækkað, þurrkatímabil eru lengri  og hitabeltisstormar eru tíðari en áður. Þessar veðuröfgar hafa haft bein áhrif á möguleika barna til þess að lifa öruggu og heilbrigðu lífi. Skelfilegar afleiðingar loftslagsbreytinga eru með ýmsu móti en t.d. lifa 92% íbúa undir fátæktarmörkum á svæðinu. Þá er skólaganga barna skert og stúlkur eru giftar ungar,” segir Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum.  

Megináherslur verkefnis Barnaheilla í Madagaskar eru eftirfarandi:  

  1. Vinna gegn fæðuóöryggi barnafjölskyldna með aðgerðum til að efla ræktun og landbúnað svo börn og fjölskyldur þeirra fái næringarríka fæðu.  
  2. Auka þekkingu foreldra/umönnunaraðila á afleiðingum vannæringar. Auka getu þeirra til að útvega börnum sínum næringarríka fæðu.  
  3. Bæta velferð barna með því að styðja við og styrkja staðbundið barnaverndarkerfi og auka vitund samfélagsins um öruggar og jákvæðar uppeldisaðferðir. 

Loftlagsbreytingar eru ein helsta ógnin sem steðjar að heiminum. Áhrif þeirra bitna mest á börnum og því er mikilvægt að styðja við barnafjölskyldur til að auka möguleika barna á mannsæmandi framtíð. 

Barnaheill þakka mánaðarlegum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn, sem og utanríkisráðuneyti Íslands. Með ykkar hjálp stöndum við vörð um réttindi barna og tryggjum velferð þeirra um allan heim.  

Þú getur lagt okkur í lið með því að gerast Heillavinur.