Barnaheill hefja fjögurra ára verkefni á Zanzibar 

Barnaheill – Save the Children á Íslandi hefja nýtt og umfangsmikið fjögurra ára verkefni á Zanzibar, Tansaníu, sem miðar að því að efla vernd barna og kvenna gegn ofbeldi. Verkefnið mun ná til 32.600 einstaklinga, þar af 18.700 barna, og byggir á heildrænni nálgun í samfélögum á svæðinu.

Meginmarkmið verkefnisins er að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi og tryggja að þolendur fái viðeigandi stuðning. Barnaheill munu vinna í tíu samfélögum og styðja við tíu svokölluð One Stop Centers, sem eru móttökustöðvar fyrir þolendur kynferðisofbeldis þar sem veitt er samhæfð þjónusta, með félagsráðgjafa, lögreglu og lækni á hverri stöð.

Fræðsla, forvarnir og réttindi barna

Unnið verður markvisst að fræðslu fyrir börn, foreldra og aðra lykilaðila í samfélögunum um réttindi barna og mikilvægi forvarna. Í tíu skólum verða innleidd forvarnarteymi (e.gender desk), en það er skipulagt úrræði innan skóla sem hefur það að markmiði að efla barnavernd, stuðla að jafnrétti kynja og fyrirbyggja ofbeldi gegn börnum. Starfsemin byggir á því að skapa öruggt og aðgengilegt umhverfi þar sem nemendur geta leitað stuðnings, fengið fræðslu og tilkynnt atvik sem varða ofbeldi, misnotkun eða mismunun. Forvarnarteymin  verða í umsjón sérþjálfaðra kennara.

Auk þess munu um 3.000 foreldrar fá fræðslu um jákvæðar uppeldisaðferðir, sem er aðferðafræði sem Barnaheill hafa nýtt með góðum árangri víða um heim til að styrkja tengsl barna og foreldra og draga þannig úr ofbeldi.

Efling móttökustöðva og lögfræðiaðstoðar

Barnaheill – Save the Children í Tansaníu hafa þegar komið að uppsetningu tólf One Stop Centers í Zanzibar. Aðeins tvö þeirra bjóða þó upp á lögfræðiaðstoð fyrir þolendur. Með nýju verkefni Barnaheilla verður lögfræðiaðstoð innleidd í allar þessar miðstöðvar, sem er lykilskref í að tryggja réttlæti og vernd fyrir börn og konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi.

Samstarf og málsvarastarf gegn barnahjónaböndum

Samhliða verkefninu á Zanzibar munu Barnaheill einnig styðja við starf Barnaheilla – Save the Children á meginlandi Tansaníu, sem gegnir mikilvægu málsvarahlutverki í landinu í að þrýsta á stjórnvöld um breytingar á lögum um barnahjónabönd.

Samkvæmt núgildandi lögum í Tansaníu er lágmarksaldur drengja til að mega ganga í hjónaband 18 ár en stúlkur mega giftast 15 ára – eða 14 ára að fengnu leyfi dómstóla. Með samstilltu átaki er stefnt að því að breyta þessum lögum og tryggja jafnan rétt kynja og aukna vernd barna.

Með verkefninu leggja Barnaheill sitt af mörkum til að skapa öruggara umhverfi fyrir börn og konur á Zanzibar og styrkja samfélög til framtíðar.