Barnaheill, Geðhjálp og Unnsteinn Manuel á ferð um landið
Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um Vesturland og Vestfirði frá 7.- 11. september með viðkomu á Grundarfirði, Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.
Félögin efna til fundar við ungmenni um allt land til að ræða líðan og veruleika ungs fólks á hverjum stað. Unnið verður úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og þau rædd með forsjáraðilum og forráðafólki sveitarfélaganna um kvöldið.
Á hverjum stað er haldin vinnustofa með nemendum úr efstu bekkjum grunnskólanna á nærliggjandi svæðum. Áhersla er lögð á samtal um samskipti, tengsl og líðan. Vinnustofurnar fara fram á skólatíma og tekur hver þeirra um 2,5 klst og er nemendum boðið í pizzuveislu í lokin.
Seinna sama dag verður fullorðnum á svæðinu boðið til samtals þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður úr vinnustofu dagsins. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili.
Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Dagskráin á hverjum stað endar svo á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.
Íbúafundir verða í Samkomuhúsi Grundarfjarðar mánudaginn 7. september kl. 19:30, Félagsheimilinu á Hólmavík þriðjudaginn 8. september kl. 13:00, Edinborgarhúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 9. september kl. 19:30, og í Patreksskóla Patreksfirði 10. september kl. 19:30.
Fyrirkomulagið að vinnustofunum og kvöldfundunum er blanda af ungmennaþingum Barnaheilla og Geðlestar Geðhjálpar. Á vormisseri fóru Barnaheill um allt land til að ræða um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna og fá að heyra þeirra sjónarmið. Geðlest Geðhjálpar hefur árlega farið um landið með fræðslu- og vitundarvakningu um geðheilsu og geðrækt, og haldið íbúafundi í lok dags.
Með því að leggja saman krafta sína vilja Barnaheill og Geðhjálp ná til fjölbreyttari hópa samfélagsins og skapa vettvang til að virkja samtal milli kynslóða um málefni sem standa ungmennum í byggðum landsins næst.
Ferðin hefst um Vesturland og Vestfirði frá 7.-11. september með viðkomu á Grundarfirði, Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Í byrjun október verður stefnt austur en 5.-9. október verður fundað á Vopnafirði, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Stöðvarfirði og á Höfn í Hornafirði.