Barnaheill byggja skóla í Síerra Leóne

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vinna nú að byggingu grunnskóla í þorpinu Macca í Pujehun héraði í Síerra Leóne. Ákveðið var að ráðast í þær framkvæmdir eftir heimsókn Barnaheilla á svæðið, en samtökin vinna þar að umfangsmiklu verkefni sem miðar að því að vernda börn gegn ofbeldi. Áætlað er að skólabyggingin verði tilbúin strax í haust, svo börnin geti hafið þar nýtt skólaár.

Barnaheill hafa unnið í Pujehun-héraði síðan 2021, þegar þau réðust í samstarfsverkefni með heimamönnum sem hefur gefið mjög góða raun. Síðastliðið haust var því ákveðið að útvíkka verkefnið og  hefja samvinnu við sjö önnur þorp til að ná til fleiri jaðarsettra barna og skapa þeim betri skilyrði til náms og þroska. Um 13.000 einstaklingar njóta góðs af verkefni Barnaheilla á svæðinu.

Vettvangsheimsókn leiddi í ljós brýna þörf

Starfsfólk Barnaheilla fór í vettvangsheimsókn til Síerra Leóne síðastliðinn september til að taka út ný verkefnasvæði. Þá kom í ljós að enginn skóli var í Macca, einu af nýju þorpunum, og aðstaða barna þar til náms var óásættanleg. Þá var tekin ákvörðun um að aðstoða samfélagið við byggingu nýs skóla, því stórum hluta verkefnisins er ætlað að bæta námsaðstæður og námsárangur barna á svæðinu.

Menntun er grundvallarréttur allra barna og lykilforsenda fyrir velferð þeirra, þroska og framtíðartækifærum. Í Síerra Leóne er aðgangur barna að öruggu og hentugu námsumhverfi afar takmarkaður, sérstaklega í afskekktum þorpum eins og í Macca.

Hönnun sem tryggir aðgengi allra barna

Framkvæmdir munu meðal annars fela í sér byggingu nýs skólahúsnæðis og kaup á töflum og húsgögnum í kennslustofur. Þá verður settur upp rampur og handrið til að tryggja aðgengi allra barna. Að auki verður  salernisaðstöðu komið upp og unnið að vatns- og fráveitukerfum auk þess sem borað verður fyrir vatni og settur upp brunnur í Macca sem einnig nýtist  þorpunum í kring.

Pujehun-hérað er eitt fátækasta og strjálbýlasta hérað í Síerra Leóne. Þar er skortur á heilbrigðis- og menntaþjónustu, vegir eru afar torfærir og meirihluti íbúa hefur aldrei sótt skóla. Með verkefninu vonast Barnaheill til að stuðla að raunverulegum og varanlegum breytingum í lífi barna og leggja þannig grunn að sterkri og sjálfbærri framtíð fyrir íbúa og samfélagið í heild.

Verkefni Barnaheilla í Síerra Leóne

Barnaheill hafa frá árinu 2021 starfað í Pujehún héraði í Síerra Leóne við verkefni sem snýr að því að vernda börn gegn ofbeldi. Meginmarkmið verkefnisins er að tryggja að börn, bæði stúlkur og drengir, séu örugg og að þau njóti bættrar velferðar heima fyrir, í samfélaginu og í skólanum. Áhersla er lögð á forvarnir gegn ofbeldi og að efla skólayfirvöld, kennara og foreldra til forvarnarstarfs og markvissra viðbragða við ofbeldi, sér í lagi þegar kemur að kynferðisofbeldi og kynbundu ofbeldi gegn börnum. Barnaheill vinna náið með lögregluyfirvöldum á svæðinu og svæðisskrifstofum Barnaheilla – Save the Children í Síerra Leóne.

Alfred Koroma starfsmaður Barnaheilla – Save the Children í Síerra Leóne.
Kolbrún Pálsdóttir verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheillum.
Kolbrún Pálsdóttir, Lydia Kamara og Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir ræða við ungar konur í Pujehun héraði um réttindi barna.