Bannað að setja börn í varðhald segja Ungheill og ungmennaráð Amnesty og UNICEF
Ungheill, ungmennaráð Barnaheilla – Save the Children, ungliðahreyfing Amnesty International og ungmennaráð UNICEF á Íslandi, sendu inn sameiginlega umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um vistun fólks og barna á flótta í brottfararstöð. Ungmennaráðin segja að slíkt úrræði sé klárt brot gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur var hér á landi árið 2013.
Ungmennaráðin eru afdráttarlaus og beinskeytt í umsögn sinni, engin krafa sé um að ríki setji upp brottfararstöðvar líkt og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Í Noregi hafi dómstólar dæmt að slík frelsissvipting sé brot á Barnasáttmála SÞ og Mannréttindasáttmála Evrópu, og því haldi engin rök um að íslensk stjórnvöld verði að fara að dæmi Norðurlandanna varðandi vistun fólks á flótta.
Stuðningur við fjölskyldur innan samfélagsins
Ungmennin benda á að betri kostir séu í stöðunni, og líta beri heldur til landa sem hafi þróað lausnir þar sem fjölskyldur dvelja innan samfélagsins með stuðningi og eftirfylgni meðan mál þeirra eru til meðferðar. Slík úrræði gefi fjölskyldum og börnum kleift að halda áfram að lifa eins eðlilegu lífi og hægt er við erfiðar aðstæður.
Ákvæði frumvarpsins veiti hinsvegar víðtækar heimildir til valdbeitingar, eftirlits og takmarkana á daglegu lífi fólks sem ekki hafi framið refsiverð brot. Slíkar öryggisráðstsafanir á borð við að setja börn í öryggisklefa, séu ómanneskjulegar og brjóti gegn þeirri einföldu siðferðiskennd að þeir sem leita skjóls eigi að mæta mannúð. Auk þess geti slík reynsla haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir sálarlíf barna. Í lok umsagnarinnar segir:
„Þetta frumvarp skiptir okkur svo miklu máli vegna þess að svona ákvarðanir móta ekki aðeins líf þeirra sem þær beinast að, heldur hafa þær áhrif á viðhorf og traust fólks til stjórnvalda. Ef við ungmenni eigum að trúa því sem okkur er kennt um réttlæti og mannréttindi, þá verðum við líka að sjá að þau gildi eigi við um alla.
Við skorum á þingmenn að hafna frumvarpi um brottfararstöð þar sem það er siðferðilega óverjandi vegna alvarlegra brota á réttindum flóttafólks og barna.“

Boðið á Alþingi og í útvarpið
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis bauð sex fulltrúum frá Ungheillum, Amnesty og Unicef til fundar við sig til að ræða frumvarp ríkisstjórnarinnar og afstöðu ungmennanna til þess. Í kjölfarið voru svo Ástrós Inga Jónsdóttir og Magnús Ingi Árnason fengin í Morgunútvarpið hjá RÚV sem fulltrúar ungmennaráðanna til að spjalla um málefni barna á flótta og ástæðu þess að þau tækju svo afdráttarlausa afstöðu gegn brottfararstöð. Ástrós og Magnús sögðust treysta því að Íslendingar stæðu saman gegn frumvarpi sem brjóti svo klárlega gegn Barnasáttmálanum.
Hér má hlusta á viðtalið í Morgunútvarpinu, og hér má lesa umsögn ungmennaráðanna þriggja á vef Alþingis.

