Ársskýrsla Barnaheilla 2025 komin út
Ársskýrsla Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er komin út. Eftir mikla umbótavinnu sem einkenndi síðustu tvö ár hafa Barnaheill sótt fram, eflt verkefni sín, og náð mikilvægum árangri störfum sínum í þágu barna.
Með nýja ofbeldisforvarnarverkefninu okkar, Heillabraut, höfum við á aðeins einu ári orðið leiðandi í fræðslu og umræðu um hvers kyns ofbeldi gegn börnum. Vitundarvakningar og herferðir Barnaheilla hafa vakið verðskuldaða athygli og hreyft við samfélaginu. Vináttuverkefnið okkar stendur sterkt á sínum grunni, og æ fleira starfsfólk leikskóla og grunnskóla sækir sér fræðslu Barnaheilla til að efla félagsleg samskipti barna og uppræta einelti.
Þá hefur ungmennaráð Barnaheilla, Ungheill, látið að sér kveða til að tryggja að rödd barna heyrist þar sem ákvarðanir eru teknar sem hafa áhrif á líf þeirra. Ný stjórn Ungheilla tók til starfa í haust, og það hefur verið frábært að fylgjast með því hversu mjög þau brenna fyrir þeim málaflokkum sem Barnaheill standa fyrir, og hafa talað fyrir þeim á opinberum vettvangi.
Á þessu ári fengu um 630 börn á aldrinum 12-18 ára fræðslu um kynheilbrigði, klám, og kynferðislega áreitni og ofbeldi, um 3.000 fagaðilar, foreldrar og háskólanemar sóttu fræðslu um vernd barna gegn kynferðisofbeldi, fordóma og hatursorðræðu og um 120 ungmenni þátt í tveimur ungmennaþingum Barnaheilla.
Þá fékk um 300 leik- og grunnskólastarfsfólk fræðslu um einelti í gegnum forvarnaverkefnið Vináttu, og 886 börn nutu góðs af verkefninu. Alls tóku 120 börn í 5.-7. bekk þátt í að þróa nýja fræðslu um Vináttu fyrir grunnskóla.
Nýr rammasamningur við utanríkisráðuneyti til fjögurra ára var undirritaður á árinu, sem gera Barnaheillum kleift að skipuleggja langtíma þróunar- og mannúðarverkefni sín á áhrifaríkari hátt með fyrirsjáanlegu fjármagni. Barnaheill luku verkefnum sínum í Kongó á árinu, en þar unnu samtökin með götubörnum í Goma, og að verkefni í Uvira sem miðaði að því að vernda börn gegn ofbeldi, misnotkun, útskúfun og vanrækslu.
Lagður var grunnurinn að þremur nýjum spennandi verkefnum í Írak, Tansaníu, og Madagaskar. Þá hefur samvinnuverkefni Barnaheilla og Save the Children í Síerra Leóne verið útvíkkað og nær nú til enn fleiri þorpa. Markmið verkefnisins er að efla enn frekar réttindi barna, bæta lífsskilyrði þeirra og styrkja samfélögin til lengri tíma.
Með ráðningum á verkefnastjóra sem sinnir málsvarastarfi og sérfræðingi í markaðsmálum höfum við styrkt málsvarahlutverk samtakanna til muna og aukið þar með sýnileika okkar í samfélaginu.
Nánar er hægt að lesa um þessi verkefni og fleiri í ársskýrslu Barnaheilla.
