Alþjóðleg herferð: Let Children Live

Börn á Gaza og Vest­ur­bakk­anum alast upp við óbæri­legar aðstæður. Ofbeldið eykst á meðan heim­urinn fylgist með og vonin virðist fara dvín­andi. Frá því að hópmorðið hófst á Gaza höfum við reglu­lega fengið hrylli­legar fréttir um þau fjöl­mörgu börn sem hafa verið drepin. Alþjóð­lega herferðin Let Children Live snýr að baráttu fyrir þau börn sem eru enn á lífi. Herferðin er unnin í samstarfi Barnaheilla – Save the Children og Amnesty Internati­onal.

Minnum á hvað er að veði: Líf 2,38 milljóna barna sem eru enn á lífi á hernumda svæðinu í Palestínu. Fyrir herferðina fengum við í hendur lista yfir nöfn 1,2 milljóna þessara barna. Markmið okkar er að vekja vonina á ný. Við neitum að láta þessi börn verða að tölfræði. Við höldum nöfnum þeirra á lofti og krefj­umst breyt­inga.

Höldum nöfnum barna á lofti

Vefsíðan www.letchildren­live.com fór í loftið þann 28. ágúst. Þar er hægt að skrá sig til að fá nafni barns úthlutað. Þú færð fyrsta nafn og aldur palestínsks barns. Barna á borð við Omar 6 ára, Samira 9 ára og Leen 12 ára. Þitt hlut­verk er að deila nafninu með heim­inum til að minna á réttinn til lífs. Haltu nafninu á lofti með því að dreifa því á samfé­lags­miðlum, úti á götu eða í þínu samfé­lagi.

Mark­miðið er að minna á nöfn þessara 1,2 milljóna barna. Til að ná því þurfum við á sem flestum að halda. Taktu þátt og fáðu fleiri með þér.

Hápunktur alþjóð­legu herferð­ar­innar verður 13. sept­ember, daginn sem alls­herj­ar­þing Sameinuðu þjóð­anna hefur sett lokafrest fyrir Ísrael til að binda enda á hernámið á hernumda svæðinu í Palestínu.

Fjöldafundur

Á Íslandi fær fólk einnig tæki­færi til að taka þátt í herferð­inni laug­ar­daginn 6. sept­ember á fjölda­fund­inum ÞJÓÐ GEGN ÞJÓЭARMORÐI sem haldinn verður á Aust­ur­velli.

Þjóð gegn þjóð­armorði 

Stað­setning:  Aust­ur­völlur í Reykjavík

Tíma­setning: Laug­ar­dag­urinn 6. sept­ember kl. 14-16

Að baki fjölda­fund­inum standa fjöl­mörg samtök og félög. Á meðal þeirra er Íslands­deild Amnesty Internati­onal ásamt verka­lýðs­fé­lögum, mann­úð­ar­sam­tökum, fagfé­lögum og öðrum samtökum. Tilgangur fund­arins er að krefjast tafar­lausra og mark­vissra aðgerða íslenskra stjórn­valda til að bregðast við þeim hörm­ungum sem eiga sér stað á Gaza.

Barnaheill og Íslands­deild Amnesty Internati­onal verða á staðnum til að vekja athygli á herferð­inni Let Children Live. Við verðum með tjald þar sem hægt verður að fá nafn barns til að skrifa á skilti og halda á lofti á fund­inum, til áminn­ingar fyrir leið­toga heimsins um að gleyma ekki þessum börnum. Á bak við hvert nafn er barn sem er enn á lífi.

Ef þú skráir þig á vefsíð­unni fyrir fjölda­fundinn getur þú mætt í tjaldið til okkar og sýnt nafnið sem þér var úthlutað, og fengið hjá okkur spjald  svo þú getir haldið nafninu á lofti á fund­inum Þjóð gegn þjóð­armorði.

Við hvetjum ykkur öll til að mæta á þennan mikil­væga fund til að sýna afstöðu gegn hópmorðinu á Gaza og hjálpa okkur að halda á lofti nöfnum barna á hernumda.