Afmæliskveðja frá bangsanum Blæ

Vináttuverkefni Barnaheilla með bangsann Blæ í lykilhlutverki  fagnaði 12 ára afmæli þann 1. febrúar. Vinátta er forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti, og er  ætlað fyrir leikskóla, yngstu bekki grunnskóla, frístundaheimili og dagforeldra. 

Markmið verkefnisins er að tryggja börnum umhverfi þar sem einelti nær ekki að þrífast, og miðar að því að þjálfa jákvæð samskipti og félagsfærni, og stuðla þannig að góðum skólabrag og vináttu milli barna. Um 65% leikskóla á landinu hafa fengið fræðslu og tekið þátt í námskeiðum Barnaheilla, og um 35% allra grunnskóla. 

Fjölmörg börn og foreldrar kannast við bangsann Blæ, en hann er táknmynd vináttu og samhygðar í vináttuverkefni Barnaheilla.

Margir leikskólar færa hverju barni lítinn Blæ að gjöf við upphaf skólagöngunnar, sem er þeirra eign út leikskólagönguna. Þau fá svo að taka hann með heim við útskrift úr leikskólanum. Litli Blær er notaður í kennslu og samverustundum, hann er vinur barnanna og huggun í dagsins önn.  

Bangsinn Blær sendir öllum leikskólum og leikskólakrökkum afmæliskveðjur í tilefni dagsins!