Á hverri klukkustund fæðast 35 börn í heiminum sem flóttamenn
Á árunum 2018 til 2025 fæddust að meðaltali 305.000 börn sem flóttamenn á ári, sem jafngildir um 35 börnum að meðaltali á hverjum klukkutíma.
Barnaheill – Save the Children vilja vekja athygli á stöðu þessara barna á Alþjóðadegi flóttamanna þann 20. júní, og hvetja stjórnvöld að virða réttindi barna á flótta. Barnasáttmálinn, sem íslensk stjórnvöld hafa lögfest, setur þá skyldu á Alþingi að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi og undan því verður ekki komist.
„Um 35 börn fæðast sem flóttamenn á hverjum klukkutíma. Þessi börn standa frammi fyrir ógnum, varðhaldi og mismunun. Öll börn, óháð uppruna þeirra, eiga skilið jafna meðferð,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.
Í dag eru 42 milljónir manna á flótta frá stríði, átökum og ofsóknum í heimalöndum sínum. Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en nú. Á sama tíma hafa margar ríkustu þjóðir heims valið að herða löggjafir sínar og takmarka móttöku flóttafólks.
Ísland gæti gert svo miklu betur
Í síðustu viku samþykktu alþingismenn á Íslandi umdeilda leið við móttöku fjölskyldna á flótta, þvert á umsagnir félagasamtaka og stofnana sem standa vörð um mannréttindi. Lögin sem samþykkt voru veita stjórnvöldum leyfi til að frelsissvipta börn fyrir það eitt að vera á flótta með fjölskyldum sínum. Barnaheill telja að auðvelt sé að gera miklu betur í málefnum barna flótta en gert er hér á landi.
Þegar málaflokkur flóttafólks færðist frá sveitarfélögum til Vinnumálastofnunar árið 2024 voru grunnskólabörn á flótta svipt allri frístundaþjónustu eftir skóla og börn á leikskólaaldri misstu pláss sín á leikskólum. Barnaheill hafa leitast við að styðja við betur við þennan viðkvæma hóp. Þar höfum við litið til alþjóðasamtaka Save the Children til að setja á fót listasmiðjur þar sem list og listkennsla er notuð til að hjálpa börnum til að vinna úr erfiðri reynslu og áföllum og aðlagast nýju samfélagi.
Barnaheill bjóða upp á þrennskonar listasmiðjur fyrir hópa af börnum á flótta. Myndlistasmiðjur Barnaheilla eru unnar í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur og við eigum samstarf við Leiklistarskóla Borgarleikhússins um leiklistarsmiðjur, fyrir börn á grunnskólaldri. Nýjasta listasmiðjan er unnin í samstarfi við Þykjó, þverfaglegt hönnunarverkefni, þar sem boðið er upp á fjölbreyttar listsmiðjur fyrir börn á leikskólaaldri sem dvelja í húsnæðisúrræði stjórnvalda fyrir flóttafólk í Reykjavík.
„Þegar við hittum þessa krakka í listasmiðjunum vitum í raun ekkert hvar þau enda. Við höfum ekki hugmynd um hvort þau fái að aðlagast samfélaginu okkar, eða hvort þau verði send úr landi. En það sem við vitum hinsvegar er að allt sem er gert til að styrkja þau, mun fylgja þeim. Þannig að þó að þau séu hluti af samfélaginu okkar í aðeins stuttan tíma, þá mun það fylgja þeim áfram,” segir Tótla. “„Það valdeflir þau, og hjálpar þeim að aðlagast þar sem þau lenda næst, ef þeim er vísað úr landi.“
Við hvetjum alla að gerast Heillavinir og styrkja þannig með mánaðarlegu framlagi við verkefni Barnaheilla – Save the Children um allan heim.
