100 börn svelt til dauða: Harmleikur sem ætti að vekja skömm um allan heim
Fréttir af dauða 100 barna vegna hungursneyðar á Gaza frá október 2023 eru skelfilegar og ættu að vekja skömm um allan heim. Það er löngu tímabært að stjórnvöld á heimsvísu krefjist tafarlausra aðgerða. Börn þurfa aðgerðir, ekki orð.
Ahmad Alhendawi, svæðisstjóri Barnaheilla – Save the Children í Miðausturlöndum, Norður-Afríku og Austur-Evrópu:
Hvaða heim höfum við skapað þegar að minnsta kosti 100 börn eru látin deyja úr hungri á meðan matur, vatn og lækningavörur sem gætu bjargað þeim bíða aðeins nokkrum kílómetrum í burtu við landamærastöð? Börn á Gaza eru látin svelta af ásetningi af hálfu ísraelskra yfirvalda. Þetta var fullkomlega fyrirsjáanleg og er algjörlega hörmung sem mannúðarsamtök hafa varað við í marga mánuði. Við vissum að þetta myndi gerast; enginn getur sagt að hann hafi ekki vitað.
Þar sem heilbrigðisráðuneytið getur aðeins veitt gögn frá þeim heilbrigðisstofnunum sem eftir eru á Gaza, vitum við að þessar tölur eru aðeins toppurinn á ísjakanum. Hver veit hve mörg ung líf hafa verið eyðilögð að óþörfu?
Við vitum líka að hjá börnum geta aðstæður eins og vannæring valdið ævilöngum heilsufarsvandamálum eins og vaxtarskerðingu, veikara ónæmiskerfi og bilun í líffærum. Áhrif vannæringar geta flust milli kynslóða, þar sem áhrif á börn gera nám og þroska erfiðari og skapa vítahring fátæktar fyrir allt samfélagið. Jafnvel þau sem lifa af gætu verið dæmd til ævilangrar þjáningar nema stjórnvöld í Ísrael leyfi tafarlausan, óhindraðan aðgang að lífsbjargandi mat, hreinu vatni, lækningavörum og starfsfólki.
Á meðan þessar óbærilegu tölur hækka sífellt, megum við ekki gleyma því að þetta eru ekki bara tölur, heldur ung líf, full af tækifærum. Annars staðar hefðu þessi börn getað alist upp heilbrigð, með þak yfir höfuðið, fjölskyldu sem annast þau, menntun og tækifæri til framtíðar. En á Gaza hafa nærri tveggja ára stríð og herkví dæmt börn til fjöldadauða, þjáninga og brostinna framtíða.
Öll tiltæk sönnunargögn benda til þess að stjórnvöld í Ísrael noti svelti sem vopn í hernaði – sem er stríðsglæpur samkvæmt alþjóðalögum. Ísraelsk stjórnvöld eru skuldbundin til að veita borgurum hjálp og vernd og alþjóðasamfélagið er skuldbundið til að tryggja það og framfylgja alþjóðalögum á öllum sviðum. Þetta brot á lagalegri skyldu er á ábyrgð okkar allra.
Barnaheill – Save the Children hafa starfað á Gaza í áratugi. Við rekum tvær heilsugæslumiðstöðvar í Gaza sem veita börnum, mæðrum og fjölskyldum nauðsynlega þjónustu, þar á meðal skimun og meðferð við vannæringu. Við rekum einnig svæði fyrir mæður og börn með stuðningi við brjóstagjöf og næringu ungra barna og samfélagslega meðhöndlun á bráðri vannæringu.
Við erum tilbúin til að auka umfang lífsbjargandi aðstoðar ásamt samstarfsaðilum okkar. Teymin okkar veita vatn, reka barnvæn svæði og svæði fyrir mæður og börn þar sem barnshafandi og konur með börn á brjósti geta fengið stuðning og sálfélagslega umönnun. Við setjum einnig upp bráðabirgðakennslustofur til að hjálpa börnum að halda áfram námi.
Við erum með vörubíla tilbúna við landamærin, hlaðna lífsbjargandi varningi sem bíður samþykkis til innflutnings, þar á meðal eru næring og umönnunarvörur fyrir mæður og börn, lækningavörur og tjöld.
